10.03.1942
Neðri deild: 16. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í D-deild Alþingistíðinda. (868)
28. mál, ársskýrslur síldarverksmiðja ríkisins
*Finnur Jónsson:
Það er nú ekki aðalatriðið í þessu máli, að þessi verksmiðja hefur verið keypt, heldur hitt, að hún hefur verið keypt, án þess að nokkur heimild væri til þess. Það er upplýst og skjallega sannað, og þýðir ekki fyrir hæstv. ráðh. að neita því, að það eina, sem lá fyrir frá stjórn síldarverksmiðja ríkisins um kaupin á þessari verksmiðju, voru einróma mótmæli gegn því, að hún væri keypt. (Atvmrh.: Ég hef ekki séð nein slík mótmæli.) Það getur vel verið, en þau eru í bréfi, sem ritað var ríkisstj. 6. jan. 1939.
Hæstv. ráðh. var að kvarta undan því, að g væri að leita að soranum í því, sem hann segði, og sletta honum. Ég hef annars aldrei orðið var við, að það þyrfti að leita að soranum í ræðum hæstv. atvmrh. Hann er alltof augljós til þess.
Það er ákaflega fjarri því, að verksmiðjustjórnin hafi verið nokkuð ósammála í þessu máli, heldur var hún á einu máli um, að þessi verksmiðja yrði ekki keypt, vegna þess að hún væri ekki hæf til þess að reka hana í samkeppni við aðrar verksmiðjur. Ég hef lesið þetta upp úr áliti verksmiðjustj. og sé ekki ástæðu til að endurtaka það. En þar er bent á það, að það eina í þessari verksmiðju, sem verksmiðjustj. hafði talið hæft til notkunar í öðrum síldarverksmiðjum, voru skilvindurnar, en þær fylgdu ekki með í kaupunum. Og nú veit ég ekki betur en að Fiskimálanefnd sé bú in að kaupa þær. Svo dáðlaus hefur þessi hæstv. ráðh. verið, að hann hefur ekki haft framtak í sér til að sjá um, að einu verkfærin, sem talin voru nothæf, fylgdu með í kaupunum.
Það er ekki siður þessa hæstv. ráðh. að ganga beint framan að hlutunum, heldur reynir hann að skjóta sér fram hjá þeim, bak við einhverja aðra. Og hann lætur sér ekki nægja að skjóta sér bak við einhverja hér í þingsölunum, heldur skýtur hann sér líka bak við tvo fjarverandi menn. Hann bar það m.a., að Stefán Jóhann hefði ekki hreyft andmælum út af þessu í ríkisstj. Mér er nær að halda, að þetta sé ósatt, eftir því sem ég þekki hæstv. atvmrh. En hvað sem því líður, færi betur, að þessi hæstv. ráðh. hefði í einu og öllu farið eftir ráðum Stefáns Jóh. Stefánssonar í ríkisstj. Þá veit ég, að hans ráð væru betri en nú. En svo bregður svo undarlega við, að þessum hæstv. ráðh. nægir ekki að skjóta sér bak við tvo fjarverandi menn, heldur ætlar hann að fara að reyna að skjóta sér bak við Jón heit. Baldvinsson. Nú veit ég, að Jón heit. Baldvinsson var brjóstgóður við vesalinga, en þó held ég, að hann hefði ekki liðið, að Ólafur Thors færi að skjóta sér á bak við hann í þessu máli. Hann var alltof greindur og grandvar maður til þess.