24.04.1942
Neðri deild: 41. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 371 í B-deild Alþingistíðinda. (920)
45. mál, sveitarstjórnarkosningar
*Finnur Jónsson:
Ég held, að það sé misskilningur hjá hv. þm. N.-Þ., að það sé nauðsynlegt að taka þetta mál til athugunar í n. nú aftur af þessum ástæðum, sem hann tók fram, vegna þess, að núverandi löggjöf, þó að hún kunni ekki að vera nógu skýr, hefur verið túlkuð á þann hátt, sem segir í þessu lagafrv., þannig að hér í Reykjavík hefur flokki verið úrskurðaður varamaður eftir því, sem segir í þessu lagafrv. Breyting sú, að gert er ráð fyrir, að þeir, sem á lista eru, geti orðið varamenn, er engin alger nýjung, því að í sumum kaupstöðum hafa lögin áður verið þannig framkvæmd, þótt þau gæfu ekki beina heimild til þess. Ef þingvilji er fyrir því, sem mér virðist, að leyfa, að fleiri séu kosnir varamenn en aðalmenn, svo að tryggt sé, að flokkar geti jafnan haft menn í stað þeirra, sem forfallast kunna, virðist mér mega við frv. una, eins og það er. Vissulega hefur það ekki verið meining löggjafans, að nokkur flokkur eigi að geta hagnazt á því, að fulltrúi annars flokks forfallist. — Ég álit breytingu hv. Ed. til skýringar og bóta.