16.04.1942
Neðri deild: 36. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 52 í B-deild Alþingistíðinda. (94)
3. mál, útsvör
*Garðar Þorsteinsson:
Mér þykir leitt, að hæstv. fjmrh. skuli taka svona í þetta mál, og ég held, að það gæti meiri misskilnings í ræðu hans heldur en minni.
Það má rétt vera, ð þessar brtt. hefðu mátt koma fyrr fram, en það er ekkert óvanalegt, að komið sé með brtt. við 3. umr. Enda var hægurinn hjá fyrir hv. n. að athuga þessar brtt., því að þær komu fram fyrir nokkrum dögum a.m.k. gæti n. haldið fund um þessar till. áður en gengið yrði frá málinu. Mér finnst þess vegna, að það þurfi ekki að standa í vegi fyrir því, að málið fái réttláta afgreiðslu. þó að till. hafi ekki komið fyrr fram.
Þá sagði hæstv. ráðh., að flm. þessarar till. ættu að vita það, að samskonar till. hefði komið fram í Ed. og verið felld þar. Þetta er rangt, eins og hæstv. ráðh. getur sannfærzt um, ef hann vill lesa báðar till. Það eru alls ekki sömu till. Hér er gerð sú mikilvæga breyt. á þessari till., frá því sem var í Ed., að skip, sem leggja upp afla utan heimilissveitar, eru samkvæmt þessari till. ekki útsvarsskyld, eins og þau voru samkvæmt orðalagi till. í Ed.
Það er rétt, sem hæstv. ráðh. sagði, að það er til ákvæði um það í útsvarsl., að heimilt sé að skipta útsvörum. En ég hygg, að þessum hæstv. ráðh., sem situr nú í bæjarstjórn og bæjarráði Reykjavíkur, sé það mjög vel kunnugt, af þeirri reynslu, sem hann hefur fengið hér í Reykjavík, að það er mjög erfitt að ná slíku inn í sambandi við skiptingu útsvars. Mér er kunnugt um, að Siglufjarðarbær hefur ekki nema í 2 eða 3 tilfellum fengið hluta af útsvari, þótt hann hafi farið fram á það. Það gengur ekki betur en svo að fá þetta. Enda hafa bæjarstjórnir ekkert úrskurðarvald þar um, heldur koma þar aðrir aðilar til greina.
Þá vil ég líka benda á það, að það hefur sýnt sig að vera erfitt að fá útsvör gjaldþegnanna hækkuð í samræmi við það, sem hækka bæri í því tilfelli að skipta ætti útsvari þannig, að atvinnusveit fái frá heimilissveit- tiltölulega réttan hluta útsvars. En ef það kemur í sama stað niður fyrir gjaldþegn, að útsvari er skipt, er þá þessi sami gjaldþegn nokkuð verr settur, þótt lagt sé á hann á báðum stöðunum, ef tekið er tillit til þess á hvorum staðnum fyrir sig? Það fæ ég ekki séð. Mér virðist, að ef maður, sem býr uppi í sveit, greiðir af 200 þús. kr. ágóða 8 þúsund kr. í útsvar, þá sé lítil sanngirni í því, ef allur sá ágóði er fenginn af atvinnurekstri á Siglufirði, að hann greiði- ekkert útsvar til þess bæjar.
Þó að ég og hv. 5. þm. Reykv. séum að bera okkur upp undan öryggisleysi í útsvars- og skattamálum, þá eigum við enga sök á því. Þeir mega taka það til sín, sem hafa haft völdin á undanförnum árum. Og hvað sem öryggisleysinu í þessum málum líður, þá er það að bæta gráu ofan á svart, ef á að svipta Siglufjarðarbæ tekjum, sem honum að réttu lagi ber. Hitt skal ég játa, að það kann að vera meiningarmunur um, hvaða fyrirkomulag á að hafa í sambandi við skiptingu útsvara að því er snertir gjaldþegna, sem heiniilisfastir eru á einum stað, en hafa atvinnurekstur á öðrum. Það fellst ég á. Og ef hæstv. ráðh. vill benda á aðrar leiðir heppilegri, sem báðir mega vel við una, skal ég ekki setja fótinn fyrir það. En það liggur bara ekki fyrir hér. Og það er sannarlega ekki til of mikils mælzt,. þó að litið sé á það, að af 11 millj. kr. útsvarsskyldum atvinnurekstri á Siglufirði eru ekki nema 3 millj. útsvarsskyldar til Siglufjarðarkaupstaðar. Hitt lendir til annarra sveitar- og bæjarfélaga. Við skulum hugsa okkur félag hér í Reykjavík. það er sama, hvað það heitir. Það hefur stofnað hlutafélag og keypt eina stærstu síldarsöltunarstöðina á Siglufirði. Þessi stöð er síðan leigð mönnum búsettum utan Siglufjarðar, sem reka bar stóran rekstur, sem ekki er útsvarsskyldur til Siglufjarðarkaupstaðar, heldur aðeins þær leigutekjur, sem eigendurnir hafa af stöðinni sjálfri. Það er þetta, sem við flm. þessarar till. erum að reyna að bæta úr og fá samræmi í.
Ég hef ekkert á móti því, að sú n., sem hefur þetta mál til meðferðar, það mun vera allshn., taki þetta til athugunar á fundi. Og ef hæstv. fjmrh. vilt styðja það, að úr því geti orðið, og ef hann mundi vilja ræða málið við n., þá væri kannske hægt að komast að einhverju samkomulagi. og ég hef síður en svo á móti því, en hef hins vegar ekki talið þess þörf. Það, sem hér er farið fram á, er ekkert annað en það, að Siglufjarðarkaupstaður fái réttmætar útsvarstekjur uf þeim atvinnurekstri, sem þar er. Og þetta er ein bezta leiðin til þess. Það má líka hugsa sér þá leið, að greitt sé visst gjald af brúttóumsetningu þessara aðila, eins og síldarverksmiðjurnar borga ákveðið gjald. Þá má enn fremur hugsa sér, að síldarsaltendur greiði einhvern ákveðinn hundraðshluta af þeirri umsetningu, sem þeir hafa á staðnum. Og ég vildi leyfa mér að spyrja hæstv. fjmrh. að því, hvort hann mundi mæla með slíku ákvæði til þess að auka tekjur Siglufjarðarkaupstaðar. Ég veit, að hæstv. fjmrh. er þess vel vitandi bæði nú og af fyrri viðkynningu við svipuð mál, að Siglufjörður hefur ekki þær tekjur af atvinnurelatri þar, sem honum eru nauðsynlegar.
Það er ekkert höfuðatriði fyrir mér, og ég hygg ekki bæjarstjórn Siglufjarðar heldur, að fá tekjur á þann máta, sem hér hefur verið farið fram á. Hitt er aðalatriðið, að Alþingi sjái honum fyrir nægilegum tekjum af þeim atvinnurekstri, sem þar á sér stað. Mig langar til að heyra það frá hæstv. fjmrh., hvort hann vill viðurkenna nauðsyn þess, að bærinn fái nægilegar tekjur, og hvort hann vill mæla með annarri heppilegri leið.