12.03.1942
Efri deild: 14. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 377 í B-deild Alþingistíðinda. (949)
32. mál, sala Hvanneyrar í Siglufirði
Flm. (Bernharð Stefánsson):
Þetta er 1. umr., og ég býst ekki við, að leyfilegt sé að ræða brtt., sem fram eru komnar við frv. Ég ætla ekki heldur að fara að ræða þessa brtt., sízt að mæla á móti henni. Ég trúi því, sem hv. þm. Vestm. segir, að þessi till. er ekki borin fram í þeim tilgangi að fleyga frv. það, er hér liggur fyrir, eða koma því fyrir kattarnef. Ég hygg þó, að það sé rétt, sem ég segi, að það, að þessi till. kom fram í Nd. í fyrra, þegar málið var búið að ganga í gegnum Ed., hafi e.t.v. orðið til þess, að málið dagaði þá uppi, og yfirleitt er það til að tefja mál, þegar farið er að breyta þeim í síðari deild.
Ég get vel skilið, að hv. þm. Vestm. ber fram brtt. við þetta frv. í þeim tilgangi að koma fram því máli, sem hann hefur áhuga fyrir, ef hann hefur trú á, að það eigi með því móti greiðari leið gegnum þingið, en mér finnst, að réttara hefði verið að bera fram sérstakt frv. um þetta, m.a. vegna þess, að hér er í rauninni um tvennt ólíkt að ræða, að Siglufjörður fái Hvanneyri, eða Vestmannaeyjakaupstaður fái allar eyjarnar. Í fyrra tilfellinu er um lítið að ræða nema byggingarlóðir, en í því síðara sjálfsagt byggingarlóðir, en þó einkum ræktunarland, og þar að auki er ég ekki viss um, nema nú þegar sé í l. heimild fyrir Vestmannaeyjar að fá ræktunarland keypt, því að í jarðræktarl. er bæjum heimilað að fá keypt ræktunarland, sem er í nágrenni við þá, ef þeir þurfa þess nauðsynlega með. Hér er farið fram á sams konar fyrir Vestmannaeyjar eins og farið væri fram á, að Siglufjörður fengi keyptar jafnframt Hvanneyri allar jarðir í því lögsagnarumdæmi. Ég segi þó ekki, að ég muni vera á móti brtt., en vildi aðeins benda hv. flm. á, að eins rétt hefði verið a.m.k. að bera fram sérstakt frv. um þetta efni.
Viðvíkjandi því, sem hæstv. forsrh. sagði, vil ég taka fram, að ég, og ég býst við, að eins sé með aðra flm. frv., er ekki á móti því, að skilyrði séu sett um, hvernig bærinn megi nota þetta land, ef þau eru aðgengileg fyrir bæjarfélagið, en um það er ekki hægt að segja, fyrr en maður sér þær till., sem fram kunna að koma um það efni, en mér finnst eðlilegt, að í söluheimildinni séu sett skilyrði.