16.04.1942
Neðri deild: 36. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 54 í B-deild Alþingistíðinda. (95)
3. mál, útsvör
*Fjmrh. (Jakob Möller):
Ég held fast við það, að sams konar till. hafi verið borin fram í hv. Ed. Till. um það, að flytja þann atvinnurekstur, sem hér greinir, undir fyrirmælin um skiptingu útsvara, og undir það, að leggja megi á hann þar, sem hann er rekinn.
Um reynslu mína í Reykjavík af skiptingu útvara hef ég ekki nema gott að segja. Og það er alger misskilningur hjá hv. þm., ef hann heldur, að hún hafi reynzt illa fyrir Reykjavík.
Þá talaði hv. þm. um það, að Siglufjarðarkaupstaður fái ekki réttmætar tek jur. En það er þá bara honum sjálfum ' að kenna. Það er ekki reynslan, eins og hv. þm. hélt fram, að Siglufjarðarkaupstað hafi ekki tekizt að fá góðar tekjur. Heldur er það af því, að hann hefur ekki reynt það. Ég veit það, og það er viðurkennt af 11v. 8 landsk., flm. till. í Ed., að það hefur verið látið undir höfuð leggjast af Siglufjarðarlæ að ganga eftir skiptingu útsvara. Um það er alls ekki að deila. Og þess vegna eru þau rök, um þessi hv. þm. færir fyrir þessu, í raun og veru úr lausu lofti, af því að þau eru byggð á röngum forsendum.
Það geta komið margvíslegar kröfur um sérstaka útsvarslöggjöf vegna hagsmuna einstakra sveitarfélaga. En ef á að setja sérstaka útsvarslöggjöf til að tryggja hagsmuni hvers einstaks sveitarfélags, þá geta hv. þm. gert sér grein fyrir, hvernig fara muni um öryggi skattgreiðendanna.
Það er alveg rétt, að það mætti fresta þessari umr. og fela allshn. að taka málið til nýrrar athugunar, en ég held, að það væri miklu réttara af þessum hv. þm. að flytja sérstakt frv. um það efni, sem þeir fjalla um, og vera ekki að stofna þessu máli í hættu með því að leiða inn í það deilumál, sem áreiðanlega veldur mikilli togstreitu innan þingsins, því að, ef satt skal segja, er það að gerbreyta þeim grundvallaratriðum, sem tekin voru upp í útsvarslöggjöfinni frá 1936. Ég held fast við till. mína um það, að þessi till. verði felld.