12.03.1942
Efri deild: 14. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 382 í B-deild Alþingistíðinda. (953)

32. mál, sala Hvanneyrar í Siglufirði

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti ! Ég efast ekki um, að allshn. muni rannsaka þetta mál sem bezt hún getur. Ég vil skjóta því til hennar, að ég hygg, að Jens Hólmgeirsson, formaður framfærslumálanefndar ríkisins, ráði yfir allmikilli þekkingu í þessum efnum og það verði n. að nota sér svo sem kostur er á. Hann mun líka hafa hugsað um, hvað hægt sé að gera til að fyrirbyggja það ástand, sem hv. 10. landsk. lýsti svo vel á Siglufirði. Þegar n. athugar, hvort rétt sé að selja þessum bæjarfélögum þær jarðeignir, sem um ræðir, treysti ég því, að hún leiti til þessa manns upplýsinga um þau almennu úrræði, sem hann hefur trú á, að gagna muni til að fullnægja landþörf bæja og kauptúna. Einnig vildi ég vona, að þegar frv. kemur frá n., sæist líka á kollinn á frv., þar sem reynt væri að stemma stigu fyrir, að annað eins og nú var lýst á Siglufirði eigi sér stað.