08.04.1942
Efri deild: 28. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 385 í B-deild Alþingistíðinda. (956)

32. mál, sala Hvanneyrar í Siglufirði

Þorsteinn Þorsteinsson:

Hv. allshn. hefur ekki getað fallizt á að mæla með þeim brtt., sem ég hef flutt við frv. og eru á þskj. 64. N. hefur í raun og veru, eftir því sem hv. frsm. skýrir frá, viðurkennt það, að það sé jafn réttur hjá Ólafsvíkingum eins og hjá Siglfirðingum til að fá keypta jörðina Hvanneyri. En aftur á móti telur n., að ekki sé fullnægt ýmsum formsatriðum í þessu máli. Ég skal játa, að n. hefur þarna nokkuð mikið til síns máls, því að þó að ég hafi borið þetta mál fram í brtt.- formi, þá er rétt að bera það fram í frumvarpsformi og sem sérstakt frv. hverja söluheimild fyrir sig. En hitt er ég ekki sannfærður um, að það sé nauðsynlegt, að það liggi fyrir umsögn sýslun. um málið, þó að heimild sem þessi sé veitt. hví að um leið og ríkisstj. afsalar jörðinni f.h. ríkisins, þá hlýtur ríkisstj. að ganga eftir því, að öllum formsatriðum sé fullnægt, og þá þar á meðal umsögn sýslun. um kaup á jörðinni.

En ég þakka mjög vel fyrir þau orð, sem n. hefur látið frá sér fara um mál það, sem ég hef borið hér fram. Og ég geri ráð fyrir því, þegar þau skilyrði eru uppfyllt, að málið er borið fram í réttu formi, þá muni ekki standa á stuðningi allshn. Ed. við þetta mál. Ég ætla því nú að taka mína brtt. á þskj. 64 aftur, í fyrstu aðeins að ákveða að taka hana aftur til 3. umr., en fyrir þá umr. svo athuga betur, hvort ég tek hana alveg aftur.