15.04.1942
Neðri deild: 35. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 393 í B-deild Alþingistíðinda. (977)

32. mál, sala Hvanneyrar í Siglufirði

*Sveinbjörn Högnason:

Hv. þm. Ísaf. kemur nú með þá skýringu, að hann fylgi frv. af því, að dómsmrh. hafi gefið því meðmæli sín. Ég verð að segja, að sjálfur verð ég að hafa mínar skoðanir um frv., hvað sem einhverjum meðmælum líður. Ekki eru þau í grg. frv., og ekki er haft svo mikið við að koma þeim á framfæri hér í þd. um leið og frv. Hv. þm. Ísaf. hefur ekki verið að hugsa um það í þessum umr. að skýra málið sem bezt og færa fyrir því hin raunverulegu rök, sem kynnu að styð ja það, heldur reyna að læða því í gegn, án þess að nokkur taki eftir, hvað er eiginlega í því fólgið. Og af hverju? Af því að málið er í rauninni óverjandi, eins og greinilega kemur í ljós, þegar farið er að kryfja það.

Hv. þm. Ísaf. segir, að eins og ástandið er, sé ekki unnt að girða fyrir brask. Vitanlega. En því þá að auka möguleikana fyrir braski? Þegar aðalumkvörtunarefnið er það, að einhverjir tveir framsóknarmenn hafi orðið hlutskarpastir í braskinu á Siglufirði, sýnist aðaláhugamálið vera að koma einhverjum fleiri að krásinni, nú þurfi bærinn að taka við þessu, svo að þessir menn geti grætt meira og 2 eða 4 eða 6 eða 8 af flokksmönnum hans, sem líka vilja hafa putana í grautnum, geti rutt sér þar til rúms í skjóli eftirgefanlegrar bæjarstjórnar. Þegar þm. telur sig geta fallizt á að undanskilja ríkisverksmiðjulóðirnar, — sjálfsagt telur hann það ekki, getur bara fallizt á það til samkomulags, reiknar hann, sem ætti þó að vita, hve gífurlegri aukningu má e.t.v. gera ráð fyrir á landþörf þessa verksmiðjurekstrar, ekki með því, að ríkið héldi eftir öllum þeim lóðum, sem það kann að þurfa í framtíðinni. Hann vill láta ríkið selja, — kaupa svo seinna, þegar einhverjir eru búnir að græða á lóðunum.