21.04.1942
Neðri deild: 39. fundur, 59. löggjafarþing.
Sjá dálk 18 í D-deild Alþingistíðinda. (993)
96. mál, brúarstæði á Jökulsá í Lóni
Flm. (Jón Ívarsson):
Herra forseti ! Ég þarf litlu við grg. þessarar till. að bæta og mun því verða stuttorður. Till. þessi fer fram á, að ríkisstj. láti rannsaka brúarstæði á Jökulsá í Lóni. Á þessi, sem er meðal stórvatna landsins, er enn óbrúuð og mikil nauðsyn þess, að úr því verði bætt, og eftir því sem Austurlandsvegurinn lengist suður á bóginn, verður brúin meir og meir aðkallandi. Áin er venjulega ófær öllum ökutækjum að sumri til og torveldar mjög samgöngur austur þar, bæði sumar og vetur.
Gera má ráð fyrir, að brú þessi verði mikið mannvirki, og þarf því athugunar við, sem æskilegt er, að gerð sé nú þegar.
Á síðustu árum hefur áin nokkuð breytt farvegi sínum í þá átt, að brúargerð mun nú auðveldari en áður var, og er meðal annars þess vegna æskilegt, að rannsókn sé gerð á brúarstæðinu nú þegar.
Það hafa ekki komið fram til Alþ. miklar kröfur um brúargerðir í þessu héraði, Austur-Skaftafellssýslu. Fyrsta brúin þar var smíðuð 1910. Það var brúin á Laxá í Nesjum. Svo liðu 25 ár, án þess að nokkur brú væri smíðuð, að undanskildum 2 eða 3 brúm á smálæki. Loks 1935 var næsta brú gerð. Það var Kolgrímubrúin, en síðan engin. Hins vegar hafa brýr komið á hvert vatnið á fætur öðru í öðrum héruðum landsins á þessu tímabili. Eftirvænting þeirra, sem þarna búa, er því orðin mikil um það, að svipuð spor séu stig.
En þar um samgöngubætur og í öðrum landshlutum, þótt svo lengi hafi verið beðið eftir þessum samgöngubótum, án þess að kvarta mikið. En þess er nú vænzt þar, að við svo búið veri ekki látið standa miklu lengur.
Ég mun ekki hafa mál mitt lengra að þessu sinni, en vænti þess, að hv. d. sjái nauðsyn þess, sem farið er fram á, og greiði götu þess.