02.09.1942
Sameinað þing: 12. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 82 í D-deild Alþingistíðinda. (1002)

13. mál, vöru- og farþegaflutningar með ströndum fram og flugleiðis

Frsm. (Páll Hermannsson) :

Herra forseti. —Ég hef ekki ástæðu til að hafa langa framsögu um þetta mál. Það er öllum hv. þm. kunnugt, að þörfin fyrir flutninga á sjó með ströndum fram hefur vaxið stórkostlega síðan stríðið brauzt út, af ástæðum, sem allir þekkja, sem leiðir af því, að mikið af vörum, sem eiga að fara til hafna úti um land, er sett upp í kaupstöðunum, einkum hér í Rvík, og svo flutt með skipum Skipaútgerðar ríkisins út um land. Fleira hefur komið til greina í þessu sambandi. T. d. má nefna það, að ekki er heimild að flytja benzín á þilfari, eins og hefur verið gert, og kallar það á aukinn skipakost til flutninganna. Hins vegar hefur það verið svo og verður svo áfram, þó að stundum hafi skip verið fáanleg, þá er erfitt að fá skip í þessar ferðir. Strandferðir okkar eru alls ekki neinar smáferðir, einkum að vetrinum, í þeim er yfir höf að fara. M. a. vegna þessa er í ráði að kaupa nýtt skip frá Ameríku, sem einkanlega er ætlað til vöruflutninga, sem ekki verður þó á þessu ári. Tilkostnaður við strandferðir hefur aukizt, það vita menn vel um, bæði við strandferðir ríkisins beinlínis og líka við flóabátana, sem ríkið styrkir. Farmgjöld hafa að vísu verið hækkað nokkuð til þess að mæta þessum útgjöldum. En þó er það svo, að umskipunarfragtir á nokkrum stöðum, sem Eimskipafélag Íslands verður að greiða Skipaútgerð ríkisins, hafa ekki hækkað síðan fyrir stríð, og var það álit sumra nm., sem um það fjölluðu, að þær mættu vel hækka. Fjvn. hefur rætt þetta mál við hæstv. atvmrh. og líka forstjóra Skipaútgerðar ríkisins, og voru þeir á einu máli um það, að bæta þyrfti strandferðirnar frá því, sem nú er, þó að þeir hins vegar lýstu þeim erfiðleikum, sem hafa sérstaklega verið á því, að fá hentug skip til þessara ferða. N. komst svo að þessari niðurstöðu og varð sammála um það að mæla með, að þessi þáltill. á þskj. 13 yrði samþ. með einni breyt., sem ekki er efnisbreyt., heldur aðeins orðabreyt., sem mörgum nm. þótti fara betur á og allir hv. nm. gátu vel fallizt á. Vil ég því leggja til, að þessari þáltill. verði vísað til síðari umr.