03.09.1942
Sameinað þing: 13. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 86 í D-deild Alþingistíðinda. (1009)

13. mál, vöru- og farþegaflutningar með ströndum fram og flugleiðis

Frsm. (Páll Hermannsson) :

Það er aðeins í sambandi við brtt. á þskj. 186 frá hv. þm. N.-Ísf. Fjvn. hefur nú ekki haft fund og þar af leiðandi ekki athugað þessa brtt., svo að ég get ekkert um hana sagt fyrir n. hönd. En sjálfur get ég lýst yfir því, að mér þykir þessi brtt. til bóta og mun fyrir mitt leyti greiða henni atkv.