11.08.1942
Efri deild: 4. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í B-deild Alþingistíðinda. (102)
7. mál, dómnefnd í verðlagsmálum
Brynjólfur Bjarnason:
Út af orðum hæstv. ráðh. um þau tilmæli mín og annarra þm., að sett yrði í l. ákvæði um, að samningar yrðu uppsegjanlegir með ákveðnum fresti, vil ég segja, að ég tel það alveg nauðsynlegt, til þess að afnám gerðardómsl. nái tilgangi sínum og hægt verði að ná þeim allsherjarsamningum, sem eru skilyrði fyrir varanlegum vinnufrið. Ég segi þetta ekki af því, að ég geri ráð fyrir, að þessa muni þurfa til að koma á samningum milli vinnuveitenda og helztu verklýðsfélaga í Reykjavík, en á mörgum öðrum stöðum þarf þess. Það er vitanlega fjarstæða hjá hæstv. ráðh. að tala um þvingun í þessu sambandi og gefa í skyn, að báðir samningsaðilar gætu orðið óánægðir með uppsagnarákvæðið. Óskin um það hefur þegar komið mjög ákveðið fram frá verkamönnum, m. a. frá verkamannafélaginu Dagsbrún í Reykjavík. Ráðh. gat þess, að til mála kæmi að setja um þetta sérstök l. Ég held, að málinu væri frekar stefnt í tvísýnu með því. Ég álít ákaflega mikilsvert, að þessu máli sé ekki stefnt í tvísýnu. Þess vegna leyfi ég mér að mælast mjög eindregið til þess við n., að hún athugi alvarlega þörfina á að setja þetta í l. Ráðh. taldi síður þörf að hraða málinu vegna þess, að fyrir því væri ákveðinn meiri hl. Ég álít þeim mun minni þörf að draga það á langinn, og ég tel það skipta ákaflega miklu máli, að samþykkt þess gangi hiklaust, svo að enginn afturkippur geti af þeim sökum komið í þær samningsumleitanir, sem þegar eru byrjaðar milli verkalýðsfélaganna í Reykjavík og atvinnurekenda, en höfuðatriðið er að koma á vinnafriði sem fyrst, binda enda á skærurnar. Ég vildi mælast til þess, að ríkisstj. reyndi að hraða þessu sem mest.