11.08.1942
Efri deild: 4. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í B-deild Alþingistíðinda. (103)

7. mál, dómnefnd í verðlagsmálum

Sigurjón Á. Ólafsson:

Ég gat þess í fyrri ræðu, að ég mundi beita mér fyrir því í n., að ákvæðið um almenna uppsögn samninga kæmist inn í þetta frv., til þess að koma í veg fyrir misrétti af þeim sökum, að sum félög eru bundin samningum til áramóta og sum kannske til 1. maí 1943. Ef uppsögn þeirra samninga mætti ekki fara fram að lögum, eru líkur til, að ekki yrði hægt að skapa þann vinnufrið, sem mér skilst, að allir telji æskilegastan. Eflaust eru að vísu til atvinnurekendur, sem vilja semja nú þegar, hvað sem uppsagnartíma líður, en það eru ekki allir. Tilboð hafa þegar komið fram um hækkanir, allt að 25% grunnkaups, og þegar samningar eru komnir á sums staðar og sums staðar ekki, hlýtur ófriður að vaxa en ekki minnka, unz samræmi er komið á um allt land. Bent hefur verið á, hvað af því leiddi, ef kaup væri á einum staðnum 50% hærra en annars staðar. Þangað mundu allir streyma og vandræði af hljótast. Lagaákvæði verður að fyrirbyggja þetta. Á haustþingi 1940 var slíkt ákvæði sett í gengisl. svo nefnd og uppsögn bundin við næstu áramót. Það er okkar í n. að ræða um þetta nánar, hvort sett skuli ný grein eða bráðabirgðaákvæði við l., og hægara er að koma þar við ýmsum rökum en hér. Ég óska þess að fá að ræða þar við hæstv. atvmrh. um þetta og hef þá von, að við endurskoðun málavaxta geti hann fallizt á þetta.