02.09.1942
Sameinað þing: 12. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 107 í D-deild Alþingistíðinda. (1058)

19. mál, raforkumál

Finnur Jónsson:

Ég ætlaði ekki að blanda mér í þessar umr. meðal annars af því, að það er ábyrgðarhluti að trekkja hv. þm. S.-Þ. upp. Hann er orðinn því svo óvanur, að honum sé svarað hér á Alþ., að ef einhver gerir það, lætur hann sér ekki nægja að svara aftur, heldur rekur bann stjórnmálasögu síðustu 20 ára í öllum þeim atriðum, þar sem hann hefur sjálfur komið við sögu. Ég veit ekki nema þetta svar mitt kunni að verða til þess, að hv. þm. byrji aftur á sömu plötunni, en ég ætla þó að hætta á það. — Hv. þm. ræddi um hinn mikla áhuga framsfl. á rafmagnsmálunum á undanförnum þingum og sagði, að Sjálfstfl. hefði drepið öll slík mál með aðstoð Alþfl. Áhugi Framsfl. í þessum málum hefur nú komið fram í því, að þm. flokksins hafa verið að flytja frv. um raforkusjóð og tekjur til hans, sem afla skyldi með því að skattleggja rafveitur í landinu og því meir sem þær skulduðu meira. Vitanlega hefur nú Alþfl. ásamt ýmsum mönnum úr öðrum stjórnmálaflokkum lagzt á móti því, að Alþ. afgreiddi slík l. En það þýðir ekki, að Alþfl. hafi komið í veg fyrir, að nokkuð væri gert í þessum málum. Hann vildi aðeins fara aðrar og réttlátari leiðir. Annars fékk Framsfl. frv. samþ. á síðasta þingi, þó að það væri ekki frumsmið hans, og má vera, að það sé velvirðingar vert af Framsfl. að taka það frv. upp, því að það hafði verið flutt af Alþfl. á einu eða tveimur þingum, en dagað uppi. (BjBj: Það var flutt af n.). Framsfl. hafði ekki haft áhuga á því, en þegar þurfti að „punta“ upp á flokkinn fyrir kosningar, voru nokkur gömul frv. tekin upp úr súru og borin fram, og er slíkt raunar góðra gjalda vert, ef málefnin eru góð.

Ég ætla ekki að fara langt út í ræðu hv. þm. S.-Þ., en aðeins minnast á það, sem hann sagði um kröfur Alþfl. gagnvart Kveldúlfi. Ég vil minnast á það, að enginn gerði harðari kröfur á hendur Kveldúlfi en hann sjálfur. Hann sagði t. d., að enginn maður með ærlegan blóðdropa í æðum gæti horft á það, að Kveldúlfsbræður réðu yrir togurum eða eitthvað á þessa leið. (JJ: Þetta er tóm vitleysa.) Jæja, eigum við að fletta því upp? Háværustu kröfurnar um uppgjör Kveldúlfs komu frá hv. þm. S.-Þ. Hann sagði, að allt hefði farið vel, Kveldúlfur hefði borgað sínar skuldir o. s. frv. En það er öllum kunnugt, að hv. þm. breytti um skoðun og varð að lokum skósveinn þessa fyrirtækis, og fellst ég á, að það sæmi honum raunar betur.

Hv. þm. veit að Ásgeiri Ásgeirssyni, sem er fjarstaddur, og er raunar ekki þörf á því, að ég taki upp vörn fyrir hann. Hv. þm. hét að skrifa sögu Ásgeirs Ásgeirssonar, en hann hefur verið að skrifa sögu hans, síðan hann hrakti Ásgeir úr Framsfl. Samt hefur vegur Ásgeirs alltaf verið að vaxa. (JJ: Er Alþýðuflokksræfillinn svo beysinn með Ásgeir Ásgeirsson?). Þó að Alþfl. sé lítill nú, þá væri hann áreiðanlega dauður, ef hann hefði notið vináttu hv. þm. S.-Þ. Það hefði þá farið fyrir honum eins og kunnum menntamanni hér í bæ, sem sagðist hafa notið bæði vináttu og fjandskapar Jónasar Jónssonar og kvað vináttu hans hafa orðið sér þungbærari en fjandskapinn, því að það er nú orðið svo með þennan hv. þm., síðan hann tók að eldast, að áhrif hans fara yfirleitt í aðrar áttir en hann ætlast til.