04.09.1942
Sameinað þing: 14. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 116 í D-deild Alþingistíðinda. (1076)
19. mál, raforkumál
Forsrh. (Ólafur Thors) :
Ég tel, að ef þetta, sem í þáltill. er greint, á að fara sæmilega úr hendi, þá verði að haga framkvæmdum á rannsókn þessa máls með öðrum hætti heldur en tekið er fram í þessari þáltill., ef ætti að taka hana bókstaflega. Ég tel því engu skipta, hvort smábreyt. verða á henni gerðar eða ekki, og greiði því ekki atkv.