08.09.1942
Sameinað þing: 18. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 123 í D-deild Alþingistíðinda. (1102)

79. mál, ríkisstjórn

Ingólfur Jónsson:

Þar sem ummæli þessarar till. um, að telja beri, að ríkisstj. starfi einungis til bráðabirgða, eru í fullu samræmi við yfirlýsingar ríkisstj. sjálfrar, þegar hún tók við völdum og síðan, og því er enn fremur lýst í till., að meirihlutastj. verði ekki mynduð á þessu þingi og stjórnin skuli starfa fram yfir næstu kosningar, þá verður að líta á till. sem hlutleysisyfirlýsingu Framsfl. og því ríkisstj. til styrktar, og þar eð ég ber fullt traust til hennar, þá greiði ég till. atkv. og segi já.