08.09.1942
Sameinað þing: 18. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 123 í D-deild Alþingistíðinda. (1103)
79. mál, ríkisstjórn
Ísleifur Högnason:
Sósfl. er í andstöðu við núv. ríkisstj. og vill ekki veita henni stuðning. En þar sem það felst í till. þeirri, sem fyrir liggur frá Framsfl., að stjórn þessi skuli sitja fram yfir kosningar, og Sósfl. vill ekki taka á sig neina samábyrgð með Framsfl. á setu ríkisstj. allt það tímabil, þá greiðum vér ekki atkv. um þessa þáltill.