08.09.1942
Sameinað þing: 18. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 123 í D-deild Alþingistíðinda. (1107)

79. mál, ríkisstjórn

Jónas Jónsson:

Þar sem það hefur komið í ljós, að ríkisstj. hafði samkv. yfirlýsingum misst tvo stuðningsflokka sína og var þess vegna ekki lengur þingræðisstjórn, þótti ástæða til að vita, hvort ekki væru einhverjir þræðir milli hæstv. ríkisstj. og þessara tveggja flokka, þrátt fyrir áður greindar yfirlýsingar. Og það hefur komið í ljós, að svo er. Þessir flokkar vilja veita henni vígsgengi. En Framsfl. vill ekki vera með í myndun nýrrar stjórnar, eins og nú standa sakir, þar sem sýnilegt væri, að það sama öngþveiti, sem þessir tveir flokkar, sem ásamt Sjálfstfl. hafa veitt ríkisstj. stuðning, hafa komið til leiðar, getur ekki annað en haldizt fyrst um sinn. Og þá hefur Framsfl. leitazt við að sjá, hversu væri háttað sambandi ríkisstj. við verkamannaflokkana, og í öðru lagi leitazt við að afmarka valdsvið núv. ríkisstj. svo þröngt, að það sé takmarkað við það, að hún hafi ekki lengur þingræðislegan stuðning og megi þess vegna aðeins sinna þeim allra nauðsynlegustu störfum, en ekki taka neina ákvörðun. Segi ég því já.