08.09.1942
Sameinað þing: 18. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 125 í D-deild Alþingistíðinda. (1129)
79. mál, ríkisstjórn
Eysteinn Jónsson:
Þeir þrír stjórnmálaflokkar, sem hafa ráðið afgreiðslu mála á þessu þingi, bera ábyrgð á því stjórnleysi, sem nú ríkir í landinu, hverjar sjónhverfingar sem þeir reyna að gera til þess að draga athygli frá þeirri staðreynd. Og þessi skrípaleikur, sem hér er leikinn við þessa atkvgr., er í samræmi við það. Það er vitað, að fyrir kosningar verður ekki ráðin bót á þessu. Með þessari þáltill. er ríkisstj. gerð valdalaus, en jafnframt er ráðherrunum gert að hanga í ráðherrastólunum til viðvörunar fram til kosninga. Tel ég það hæstv. ráðh. hæfilegt hlutskipti, enda sýnilegt, að það er í nákvæmu samræmi við verk þeirra. Segi ég því já.