08.09.1942
Sameinað þing: 18. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 126 í D-deild Alþingistíðinda. (1133)

79. mál, ríkisstjórn

Gunnar Thoroddsen:

Hv. 1. þm. Eyf. (BSt) minntist á sams konar till., sem borin hefði verið fram 1927. Með tilvísun til þess, að þáverandi Íhaldsflokkur lýsti yfir, að hann skoðaði þá till. sem hlutleysisyfirlýsingu Framsfl., vil ég um leið taka fram, að í þáltill., sem fyrir liggur, felst ekki eitt orð í þá átt, sem hv. þm. S.-Þ. (JJ) sagði, að stjórnin væri að nokkru leyti svipt völdum með þessari þáltill., segi ég já.