19.08.1942
Efri deild: 10. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 67 í B-deild Alþingistíðinda. (114)

7. mál, dómnefnd í verðlagsmálum

Fram. minni hl. (Hermann Jónasson) :

Háttv. frsm. meiri hl. er víst að flýta fyrir gangi mála gegnum þingið samkv. óskum og yfirlýsingum, sem hafa birzt í stjórnarblöðunum undanfarið, og er nú búinn að tala um málið nokkuð á annan klukkutíma. Ég hygg, að það sé nokkuð einstök málsmeðferð á Alþ., þegar stuðningsmenn stj. eru að tala um, að nauðsynlegt sé að flýta fyrir málum gegnum þingið og byrja svo, áður en andstæðingarnir láta nokkuð til sín heyra, að ráðast á þá með offorsi og skömmum um allt milli himins og jarðar, sem mundi áreiðanlega, ef því væri svarað orði til orðs endast til þess að ræða um það í nokkra daga, og enda svo ræðu sína með ósk um, að flokkarnir geti staðið saman um málin og látið sér koma betur saman en verið hefur hingað til. Þetta er satt að segja alveg táknrænt fyrir þann stjórnmáláflokk, sem nú fer með völd. Annars get ég vel skilið, að það nál., sem ég hef látið frá mér fara sem lýsingu á því, hvernig hann hefur farið með þetta mál, komi við taugakerfi manna, sem virðast ekki vera allt of taugastyrkir þessa dagana, og gripið til ýmissa úrræða, sem minna nokkuð mikið á Pilatusarþvott.

Þá er það þessi dæmalausa ræða hv. frsm. meiri hl., sem ég mun nokkuð víkja að, þó að ég geri það í svo stuttu máli sem mér er unnt. Það er ekki nema um tvennt að gera hjá þessum hv. frsm. Annað hvort fer hann með vísvitandi ósannindi í þessu máli eða hann þekkir alls ekki það, sem hefur gerzt í málinu undanfarna mánuði, sem ég vil álíta sennilegra.

Hann hóf mál sitt á því, að erfitt væri að semja tryggar reglur um varasjóði. Þetta er eitt af því fáa, sem ég er honum sammála um, en það verður ekki fært í lag, fyrr en þeirri dauðasiglingu er lokið, sem nú er siglt í íslenzkum stjórnmálum, sem endar ekki með öðru, þar sem þessi stjórnmálaflokkur sér ekki að sér, en að þjóðin höggvi á þá dauðu hönd, sem nú heldur um stjórnvölinn. Ég er honum sammála um, að þetta þarf ýtarlegrar endurskoðunar við, en það er engin sönnun á því máli, sem hann er að flytja, því að ef einhverjir gallar voru á þessum l., þá áttu þeir, sem beittu sér fyrir l., að beita sér fyrir, að betur væri búið um þessi ákvæði.

Hann minntist á, að tæplega væri von, að hefði skapazt góður vilji fyrir þessum l., vegna þess að meðferð fjármálanna hefði verið þannig í höndum framsóknarstj., að menn hefðu ekki haft mikla trú á, að sjóðir geymdust vel hjá því opinbera. Þetta er vitanlega efni til að ræða um það í dag og á morgun, ef við viljum rökræða það út af fyrir sig, en ég vil aðeins láta nægja að svara því, að ég held, að hjá flestum hafi þessi orð þau áhrif, að það verki næstum eins og gott grín, ef menn geta hlegið að því að heyra þessi orð úr munni þess manns, sem undanfarið hefur stjórnað fjármálum Reykjavíkurbæjar og er einn af þeim mönnum, sem tekur þátt í þeirri dauðasiglingu, sem nú er siglt í íslenzkum þjóðmálum. Það er broslegt að heyra ummæli þessa hv. þm. um ofstopa og óbilgirni Framsfl., þm. úr þeim flokki, sem stendur að því blaði, sem birt hefur þann leiðara, sem það hefur birt nú nýlega, sem er eitt af því dæmalausasta, sem birzt hefur um íslenzk stjórnmál í blöðum, sömu dagana og Framsfl. er að bjóðast til að reyna að firra þjóðina þeim vandræðum, sem nú steðja að, með því að koma til vegar að hætta við þau ósköp, sem sú stj., sem nú situr að völdum, er að leiða yfir þjóðina, sem m. a. er birt frásögn af í Þjóðviljanum í morgun. Ég get undrazt yfir að heyra það af munni þessa hv. þm., að Framsfl. hafi hugsað sér að framfylgja þessum l. með einhverjum ofstopa. Var það ekki sá forsrh., sem nú fer með völd og einnig var ráðh., þegar þessi l. voru sett, sem sagði þá í ræðu, að þau væru þörfustu l., sem sett hefðu verið síðustu áratugina, og flokkar, sem stæðu að þeim, hefðu sameinazt um að framfylgja þeim í gegnum þykkt og þunnt: En það er eftirtektarvert, að Framsfl., sem allir vissu, að mest beitti sér fyrir þessum l., Framsfl., hann vann á í þessum kosningum. Hann og Sósfl. unnu á í þessum kosningum, en Sjálfstfl. beið herfilegasta ósigur, ósigur, sem heldur áfram meðal þjóðarinnar þessa daga, sem nú eru að líða.

Það er satt að segja undarlegt að heyra það frá borgarstjóranum í Reykjavík, að ekki sé hægt að halda uppi l., nema almenningur vilji það. Hver er þessi almenningur, sem verið er að tala um? Hann segir í sambandi við stjórnarskrárfrv., að þar sé ómögulegt að snúa við, vegna þess að mikill meiri hl. þjóðarinnar hafi léð þeim flokkum fylgi, sem hafi staðið að málinu.

Í síðustu kosningum lýsti mikill meiri hl. þjóðarinnar yfir því, að hann væri fylgjandi þessu máli, með því að ljá Sjálfstfl. og Framsfl. það kjörfylgi, sem þeir fengu. Það er því í hæsta máta barnalegt og undarlegt að heyra það af vörum borgarstjóra Reykjavíkurbæjar, þegar hann segir þá setningu, að það sé erfitt að fá almenning til að una við l., sem sett eru til að byggja upp framtíðina. Hvar stendur stjórnarkerfi okkar, ef þessi ummæli væru rétt? Hvernig væri þá komið lýðræðislandi eins og Íslandi? Það var einmitt hægt að fá almenning til þess að gefa Sjálfstfl. og Framsfl. mikið fylgi, af því að hann fann, að dýrtíðarl. voru skynsamleg.

Borgarstjórinn sagði, og ég ætla að halda mér sem mest við hans gullvægu orð, að það, sem riði mest á, væri, að samúð væri á milli allra. En er hv. þm. nú alveg viss um, að sjávarútvegurinn geti borið það, ef ekki yrði hægt að gera út bátana í vetur vegna dýrtíðar? Þá gæti ég trúað, að ekki liði langur tími, þangað til samúðin yrði orðin einkennileg á milli framleiðenda og launþega. Það mun og sjást á næstunni, hvert gagn verður af grunnkaupshækkuninni. Verð á innlendri framleiðslu hækkar í samræmi við það, ef við eigum að halda áfram að fá eitthvað að éta.

Það verður e. t. v. einhvern tíma hægt að minna borgarstjórann á, hvernig samúðin hafi verið þá. Það er alveg fyrirsjáanlegt, hvort sem það verður í vetur eða svolítið seinna, að bátarnir geta á ýmsum stöðum ekki gert út. Með hinni nýju fjármálastefnu er verið að stýra út í það sama, sem hv. þm. sjálfur lýsti með svo sterkum orðum, að hefði verið, þegar útvegurinn var að stöðvast 1539. Það, sem er notað innan lands, hækkar í samræmi við vísitöluna og grunnkaupshækkunina. Allt étur sig upp, og sjávarútvegurinn og aðrir atvinnuvegir stöðvast. Það verður endirinn á samúðinni.

Ég vil með örfáum orðum minnast á nál. mitt, sem fór svo í taugarnar á hv. þm., að hann varð æstur og skalf og flæmdi flesta þm. út úr d. Hann sagði, að niðurstöðurnar í nál. mínu stönguðust. Hann hafði það réttilega eftir mér, að með frv. væru teknar burt allar skorður gegn dýrtíðinni. Jafnframt sagði hann, að í nál. stæði, að gerðardómsl., eins og þau væru framkvæmd, væru þýðingarlaus og rétt að afnema þau. Sérhver þm. hlýtur að sjá, að þessar röksemdir stangast ekki. Þær ráðstafanir, sem nú er verið að gera, reisa engar skorður við dýrtíðinni. L. geta verið þýðingarlaus í höndum stj., sem er alveg vanmáttug að framkvæma þau, og það er þetta, sem hefur skeð.

Hv. þm. deildi á mig fyrir, að ég hefði ekki gert ýmislegt, sem þurfti að gera, ef l. hefðu átt að vera framkvæmanleg. Það hefði þurft að takmarka setuliðsvinnuna, taka stríðsgróðann úr umferð og stöðva óþarfar framkvæmdir. Hv. þm. hefði nú ekki minnzt á þetta, ef hann hefði vitað, hvað gerðist. Af svo mikilli vanþekkingu talaði hann. Í fyrrv. stj. var núverandi forsrh. atvmrh., og það var hann fyrst og fremst, sem átti að gera samninga við setuliðið. Eftir þessu var rekið dag eftir dag og viku eftir viku, enda var þetta fyrsta byrjunin, sem þurfti að gera, því að annars gátum við ekki hagað ráðstöfunum okkar um framkvæmdir í samræmi við það, hversu miklu vinnuafli væri yfir að ráða. En þegar þáverandi atvmrh. lét þetta undir höfuð leggjast, varð það að samkomulagi milli mín og hans, að við fengjum tvo menn, þá Sigurjón Jónsson og Jón Árnason til þess að beita sér fyrir þessum samningum, og þeir reyndu samninga um fækkun í setuliðsvinnunni. En samningar voru erfiðir, því að þeir fengu það svar, að engar framkvæmdir væru nauðsynlegri en varnir landsins. En eftir að herstjórninni var sýnt fram á, að atvinnuvegirnir væru í verulegri hættu, viðurkenndi hún, að það þyrfti að taka tillit til þess, en sagði jafnframt : „Hvernig tryggið þið það, að vinnukrafturinn fari ekki í óþarfar framkvæmdir?“ og vildi ekki fækka í setuliðsvinnunni, nema stj. skrifaði undir það að taka í sínar hendur og útvega til þess heimild, ráð yfir framkvæmdum í landinu. Ég sé ekkert á móti því að segja það hér, því að ég álít, að það eigi að birta það, að þetta atriði hefur aldrei verið haldið í samningunum við setuliðið. Það hefur ekki verið staðið við þessu samninga. Var það af því, að fyrrv. forsrh. gengi ekki eftir því? Það voru haldnir tveir fundir í stjórnarráðinu með Sigurjóni Jónssyni og Jóni Árnasyni, þar sem fram kom till frá mér um að framfylgja þessu ákvæði, en þáv. atvmrh, og fjmrh. neituðu að standa við samningana. (HG: Hvenær var þetta?) Hv. þm. man eflaust eins vel og ég, hvenær útdrátturinn úr þessum samningum var birtur. Þetta var þá sömu daga.

Það átti að fækka mönnum í setuliðsvinnunni niður í 2000 frá 1. júlí, en mér er sagt, að það hafi aldrei verið lækkað niður í þá tölu, og þetta hefur m. a. íslenzkur landbúnaður orðið við að búa. Af þessu er alveg ljóst, hvað borgarstjórinn talar af mikilli vanþekkingu. Þeir, sem stóðu í vegi fyrir ráðstöfunum, sem gátu tryggt það, að mögulegt væri að framfylgja gerðardómsl., voru ráðh. Sjálfstæðisflokksins hinir sömu og enn sitja við stýri.

Sama vanþekkingin kemur fram hjá hv. frsm., þegar hann er að segja sögu málsins. Hann spurði, af hverju ég hefði ekki 1940 komið fram með aðrar úrlausnarleiðir en dýrtíðaruppbótina. En till. frá mér hafa hvað eftir annað birzt í blöðum og líka komið fram hér í hv. d. Ef hv. frsm. hefði viljað kynna sér málavöxtu til hlítar, hefði hann ekki þurft að vaða reyk. En allar þessar staðleysur eru fluttar til að lengja ræðutímann, svo að framsaga meiri hl. geti orðið skammaræða á aðra klst.

Hv. frsm. segir, að ég hafi sagt, að skattal. væru óheiðarlega framkvæmd. Ég hef sagt, að þau séu framkvæmd af áhugaleysi. Það er á allra vitorði, að tekjur manna eru oft og tíðum svo dreifðar og stórtekjur hjá mörgum, sem ekki koma opinberlega fram, að það er ekki hægt að framkvæma skattal. nema með eftirliti skattadómara.

Ég hef viljandi látið koma fram mjög stutt mál um hvert meginatriði í þessu sambandi, en hef forðazt að lengja umr., og læt að öðru leyti nægja að vísa til nál. Það hefur verið rætt um það í blöðum, að við framsóknarmenn tefðum málið. Það kom í ljós við 1. umr., hver tafði málið, og það mun koma í ljós hér. Ég sé ekkert því til fyrirstöðu, að málið fari til 3. umr. nú, og við framsóknarmenn munum ljá okkar aðstoð til þess, að svo megi verða. Ég vil lýsa yfir þessu til að sýna, að það stendur ekki á Framsfl., hvað það snertir, að bæði þetta mál og stjórnarskrármálið ættu að geta fengið afgreiðslu á morgun.