19.08.1942
Efri deild: 10. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 70 í B-deild Alþingistíðinda. (116)
7. mál, dómnefnd í verðlagsmálum
Forseti (JJós) :
Umr. um þetta mál hafa nú farið nokkuð vítt og breitt. Það má raunar segja, að þetta sé ekki óeðlilegt, en ég vil þó minna hv. þdm. á, að þetta er 2. umr. málsins og samkv. því ekki ætlazt til, að umr. dreifist meira út en nauðsyn ber til vegna málsins sjálfs.