20.08.1942
Sameinað þing: 6. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 139 í D-deild Alþingistíðinda. (1162)
12. mál, samningar við verkalýðssamtökin til að tryggja nauðsynlegustu framleiðslu þjóðarinnar
Flm. (Einar Olgeirsson) :
Herra forseti. — Við sósíalistar höfum leyft okkur að flytja hér sömu till. og við fluttum á síðasta þingi óbreytta. Hún miðar að því að fela stj. að gera samninga við verkalýðinn til þess að tryggja framleiðsluna og landvarnarvinnuna.
Er við fluttum þessa till. á síðasta þingi, var stefna stj. þveröfug við efni hennar. Sú stefna birtist bezt í gerðardómnum, í stað þess að við vildum samvinnu við verkalýðinn.
Nú sé ég, að hér eru komnar fram tvær till. frá tveimur öðrum þingflokkum, sem stefna í sömu átt og okkar till., hvetja til samvinnu við verkalýð tandsins. Þetta sýnir, að hv. Alþ. er nú farið að skiljast, að þjóðinni farnast þá fyrst vel, að verkalýður hennar sé ekki sniðgenginn. Aðeins einn flokkur, Framsfl., hefur enn ekki lært þennan sannleika.
Í sambandi við skort á fólki í sveitavinnu, sem þessi flokkur stagast á, vil ég segja það, að það var hægt að bæta úr því á síðasta þingi, ef samið hefði verið við verkalýðinn, í stað þess að sýna honum hnefann. En þetta er ekki enn of seint, þótt seint sé. Verkalýðurinn bauðst beinlínis til þess í fyrra að taka upp þessa samvinnu, sbr. tilboðið frá Dagsbrún. En því var aldrei einu sinni svarað. Að vísu átti stj. þá að hætta við gerðardómsl. Það var eðlileg forsenda fyrir samvinnu. Og nú er svo komið, að sú stj., er tók við í vor, hefur að nokkru farið inn á þá braut að byrja samvinnu við verkalýðinn. Hún hefur látið launahækkanir óátaldar og er nú að afnema gerðardóminn. Þó teldi ég betur farið, ef djarfar hefði verið gengið til verks. Þá hefði aldrei komið til þeirrar vinnustöðvunar við vöruuppskipun, sem nú stendur yfir. Ég drep á þetta til þess að sýna, hversu nauðsynlegt það er, að stj. líti raunhæfum augum á þessi mál og taki tillit til þess, að verkalýðurinn er nú orðinn sterkasta stétt þessa lands.
En það er um eitt mál sérstaklega, sem nú greinir á. Ég geri það hér að umtalsefni, þar eð ætlazt er til, að umr. fari fram samhliða um 3 mál. Það er till. frá þremur þm. Sjálfstfl. Í grg. hennar er gengið út frá því, að vinna hjá setuliðinu sé látin mæta afgangi. Það er nauðsynlegt, að tekin sé afstaða til þessarar vinnu hér á þinginu. Sumir vilja telja hana fjandsamlega Íslendingum. Það kom fram hér á síðasta þingi. En ég held, að þessi afstaða sé í mótsögn við stefnu Alþ. frá í fyrra, er það samdi um herverndina við Bandaríkin. Það er ómögulegt að líta svo á, eftir því sem íslenzka ríkið lýsti sérstaklega yfir í þeim samningi, sem það sem frjálst og fullvalda ríki gerði um herverndina, að því sé þessi vinna óviðkomandi. Nú, þegar við svo að segja daglega fáum heimsóknir af þýzkum flugvélum, hlýtur hver maður að sjá, að okkur er það ekki óviðkomandi, hvort varnir landsins eru í sæmilegu lagi eða ekki, hvort nóg er hér af flugvöllum og hvort hægt er að koma fyrir nægilega miklu af tækjum til að verja landið vel. Og það veltur mikið á því fyrir atvinnuvegi okkar og afkomu, hvort hægt er að verja verzlunar- og útgerðarflota okkar, hafnir og annað slíkt fyrir árásum, ef til kæmi. Það er þess vegna svo, að vinnan hjá hinum erlendu herjum hefur beina þýðingu, ekki aðeins fyrir atvinnulíf okkar, heldur beinlínis fyrir sjálfstæði okkar, og það er skylda okkar, sem höfum gert herverndarsamning, að leggja ekki stein í götu þess, að hægt sé að framkvæma þessa vinnu. Hitt gefur að skilja, að við gerum þá kröfu, að framleiðsla okkar sé tryggð, enda ætti það a. m. k. að vissu leyti að vera í þágu þess ríkis, sem við höfum gert herverndarsamning við, að geta keypt framleiðsluvörur okkar, og ég vit geta þess í þessu sambandi, að það er langt frá því, að það sé nokkur þörf á að draga úr nauðsynlegri framleiðslu Íslendinga vegna þess, að nokkurt vinnuafl er sett í landvarnirnar. Það er varið svo miklu vinnuafli í alveg óþarfa vinnu og mikið vinnuafl, sem alls ekki er notað, að það ætti að hafa nægt til þess, sem upp á vantar til framleiðslunnar. Við getum ekki búizt við, að meðan allur heimurinn stendur í stríði og við gerum samning við stórveldi um að taka að sér hervernd hér og gerum kröfu til, að hún sé fullkomin, verði engin röskun í þjóðlífi okkar. Erlendis er það svo, að vinnuafi kvenna er notað í svo stórum stíl, að í fjölda hergagnaverksmiðja, t. d. í Englandi, mun kvenfólkið vera í meiri hl. En við höfum ekki snert á því að tryggja okkur, að vinnuaflið í landinu væri notað. Við höfum ekki snert á því að skipuleggja verzlun okkar, og að svo miklu leyti sem þvingunum er beitt, eru þær alltaf miðaðar við hag milljónamæringanna á móti hagsmunum alþýðunnar. En eins og ég hef tekið fram, er með frjálsu samkomulagi við verklýðssamtökin hægt að gera hvort tveggja með því vinnuafli, sem til er í landinu: láta í té þá vinnu, sem nauðsynleg er talin til landvarnanna, og tryggja alla nauðsynlega framleiðslu, og það förum við fram á, að sé reynt.
Ég ætla ekki að hafa þessa framsögu lengri. Ég býst við, að það sé meiri og almennari skilningur nú en áður á því, að gera eigi frjálsa samninga við verkalýðsfélögin. Ég vænti, að máli þessu verði vísað til allshn., ásamt þeim till., sem um þetta mál fjalla.