20.08.1942
Sameinað þing: 6. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 141 í D-deild Alþingistíðinda. (1168)

14. mál, kaup og kjör í opinberri vinnu

Flm. (Stefán Jóh. Stefánsson) :

Herra forseti. Ég vil fyrst leyfa mér að geta þess út af orðum hæstv. forseta við næsta dagskrárliðinn á undan (till. um vinnuafl í framleiðsluþarfir), að það var ekki ástæða til að taka til umr. till. þá, sem nú er til umr., bæði af því, að hún fjallar um mörg fleiri atriði en till., sem nú var vísað til allshn., og af því að ekki er heldur viðeigandi, að þrjú mál séu rædd í einu, þó að skyld séu. Ég vil þá, svo að mest sé í samhengi við það mál, sem hér var rætt á undan, víkja að 2. tölul. till. á þskj. 14. Hann fjallar um samninga við verklýðssamtökin, um miðlun á vinnu við verklegar framkvæmdir og samræmingu kaups og kjara þeirra manna, er vinnuna stunda. Till. á þskj. 12 og 27 fjalla að verulegu leyti líka um það sama, og þar sem við flm. erum allir sammála um, að brýna nauðsyn beri til að semja við verklýðssamtökin, þarf ég ekki að rökstyðja það sérstaklega.

Ég vil taka það fram, að ég tel sjálfsagt, ef slíkir samningar komast á, að það væri tekið til athugunar um leið, hvernig bezt mætti beina vinnuaflinu til hinna mismunandi starfsgreina, og kemur þá til álita það atriði, sem varð ágreiningur um hér áðan, nefnilega hervarnavinnan. Í till. okkar Alþflm. er það tekið fram, að við óskum eftir samkomulagi að því, er varðar framleiðslustörfin og verklegar framkvæmdir, en þar í getur falizt vinna bæði hjá ríkinu, einstaklingum og varnarhernum. Það þarf ekki að fara út í það, hvort það sé æskilegt eða ekki, að íslenzkir verkamenn vinni að landvörnunum. Við vitum, að þeir gera það, og við verðum að gera ráð fyrir, að eitthvað hljóti að verða leitað eftir íslenzkum starfskröftum til framkvæmda á mannvirkjum, og svo framarlega sem verkamenn hafa ekki atvinnu við annað, sem þeir kjósa heldur að vinna að, munu þeir leita í landvarnarvinnuna eins og hverja aðra vinnu, sem er sæmilega borguð. Það er ekki ljóður á ráði neins manns, þó að hann vinni að landvörnunum hér, einkum ekki eftir að við höfum gert samning við vinsamlegt stórveldi, og ég vil taka undir með hv. flm. till. á þskj. 12. að okkur hér skiptir það óendanlega miklu, hvernig varnirnar eru. Því að mikið er undir því komið, hvernig úrslitin verða í hildarleiknum sjálfum, og er það svo auðsætt mál, að úr því hér eru hervarnir og þær framkvæmdar eftir samningum við íslenzkt löggjafarvald og framkvæmdarvald, er okkur næsta nauðsynlegt, að þær hervarnir séu sem sterkastar og beztar, og ætti sízt að harma það, þótt íslenzkur verkalýður taki þátt í að styrkja, efla og bæta þessar hervarnir.

Ég mun ekki ræða þetta atriði nánar, en það, sem fyrir okkur flm. þessarar till. vakir, er að nokkru leyti hið sama og stefnt er að með till. á þskj. 12 og 27, og vænti ég, þar sem við erum sammála um aðalkjarna málsins, að samkomulag geti náðst um viðunandi lausn á því.

Í 2. tölul. er vikið að öðru atriði, þ. e., að samræmdur sé aðbúnaður og kjör þeirra, sem þessa vinnu stunda, og er það sjálfsagt að reyna að gera framkvæmdir til þess að samræma kjör og aðbúnað manna sem vinnu stunda í mismunandi atvinnugreinum. Við getum ekki búizt við því, að verkamenn séu viðbúnir því að fara á þennan staðinn eða hinn við verri kjör en þeir ættu kost á annars staðar. Það verður að gera athuganir á því, á hvern hátt sé hægt að gera framkvæmdir, sem miði að því að gera vinnuaflið fúsara til að fara á þá staði, þar sem þess er mest þörf. Það er eitt af því, sem verður að athuga í sambandi við atvinnumálin yfirleitt, að styðja að því, að aðbúnaður manna á mismunandi vinnustöðvum verði sem sambærilegastur, svo að þær ástæður hamli því ekki, að menn leiti frekar til eins staðar en annars, þar sem nauðsynlegt er að fá vinnu á báðum stöðunum.

Læt ég svo útrætt um 2. liðinn, en vil óska, að till. verði vísað til allshn. Sþ., og teldi rétt, að n. athugaði, hvort ekki væri hægt að sameina í eitt till. á þskj. 14, 12 og 27, því að það er aðalatriðið, að samkomulag náist um merg málsins.

Þá skal ég með nokkrum orðum víkja að 1. tölul. Þar er farið fram á, að stjórnin leiti samninga um kaup og kjör í allri þeirri vinnu, sem framkvæmd er af ríkinu eða stofnunum þess. Það er einn þátturinn í því, sem við Alþflmenn teljum nauðsynlegt og eðlilegt, að leitað sé sem mest samstarfs við verkalýðssamtökin yfirleitt og ekki sízt á þeim erfiðu tímum, sem nú ganga yfir landið, og einn af þeim aðilum, sem hvað helzt á að semja við, eru menn, sem vinna í opinberri vinnu. Þessir menn búa við mesta ófremdarástand, hvað launakjör snertir. Launin eru talsvert mismunandi í vegavinnu, brúarvinnu, símavinnu og við vitabyggingar og oft svo mismunandi á hinum ýmsu stöðum, að ekki er hægt að halda uppi framkvæmdum á einum stað, þótt það sé hægt á öðrum, þar sem þær eru ekki eins aðkallandi. Það hefur farið svo um þessa vinnu eins og aðra, eftir að gerðardómurinn komst á, að það hefur skapazt mikið misræmi um kaup og kjör. Mér er kunnugt um, að flokkur, sem vinnur að vegavinnu í nánd við Reykjavík, hefur nýlega fengið samkomulag við vegamálastjóra um allmiklar kjarabætur. Það varð talsverð kauphækkun og vinnudagurinn styttur niður í 8 stundir. En það munu ekki vera nema tiltölulega fáir hópar, sem hafa gert þetta. og það er víst, að menn á Norður-, Austur- og Vesturlandi eiga eins heimtingu á að fá viðurkenndan 8 stunda vinnudag og þeir, sem vinna á Suðurlandi. En þessir verkamenn hafa brotið ísinn, og umboðsmaður ríkisins hefur gert þennan samning. Að vísu er þetta falið með því að bóka það öðruvísi en það er í raun og veru, því að bókhald vegamálaskrifstofunnar sýnir 9–10 stunda vinnudag, eins og áður var, þótt ekki sé unnið nema í 8 stundir. Þannig hefur ísinn verið brotinn, og svo þarf að gera á fleiri stöðum. Ég álít, að ríkið eigi að leggja stund á það að vera fyrirmyndaratvinnurekandi og greiða verkamönnum sínum viðunandi kaup, jafnframt því sem þeir búi við viðunandi kjör og hafi góðan aðbúnað. Ég hygg svo, að ég þurfi ekki að gera nánari grein fyrir þessum 1. tölul., en geng út frá því, að kaupgjaldið verði samræmt og komið verði á 8 stunda vinnudegi.

Ég vík þá að 3. liðnum, um undirbúning tvenns konar löggjafar: um 8 stunda vinnudag og um vinnuvernd.

Fyrir mörgum árum hefur 8 stunda vinnudagur verið leiddur í lög víða um lönd, og þeir, sem þekkja sögu verkalýðshreyfingarinnar, vita, að fyrir um ½ öld hófust 1. maíhátíðahöld verkamanna einungis eða aðallega á því, að heimtaður var 8 stunda vinnudagur. Nú þurfa verkalýðssamtökin ekki að hafa kröfugöngur til þess að heimta 8 stunda vinnudag, því að hann er víða í lög leiddur, en Ísland er eitt af þeim fáu ríkjum, sem engin lög hefur um þetta efni. Vinnumáladeild Þjóðabandalagsins safnaði ýtarlegum skýrslum um vinnutíma víða um lönd og vinnuafköst í sambandi við vinnutíma. Yfirleitt sýndu skýrslurnar það, að stytting vinnudagsins niður í 8 stundir, eða jafnvel styttri vinnutími, minnkaði ekki afköst verkamannanna. Og við nákvæma skýrslusöfnun hefur það komið í ljós, að vinnuafköst verkamannanna minnka ekki, þótt vinnutíminn sé hóflegur. Ég vil benda á þetta til athugunar fyrir þá sem hafa sérstök atvinnurekendasjónarmið, en þeir ættu að láta sér nægja með það, að afköstin minnka ekki, þótt vinnutíminn sé styttur. Það þarf ekki að tala um það, hve ánægjulegt það er fyrir verkamennina að geta haft stuttan vinnudag, en geta samt látið jafnmikið eftir sig liggja. Ég vil taka það fram, að í ýmsum atvinnugreinum er svo háttað, að ekki er hægt að koma við 8 stunda vinnudegi. Að öðru leyti skírskota ég til till. og grg.

Síðasti liður till. er um vinnuvernd, þ. e. alls konar eftirlit á vinnustöðvum, eftirlit með vélum o. þ. h. Víða um lönd er þetta eftirlit með vélum fyril löngu komið í fullkomið form. Hér á landi er mjög lausleg löggjöf um þetta eftirlit, og hygg ég, að lítið eða ekkert hafi verið framkvæmt af þessu eftirliti í seinni tíð. En það er nauðsynlegt, að þetta eftirlit sé framkvæmt, til þess að draga úr áhættu verkamannanna við þá vinnu, sem væri þeim hættuleg, ef ekki væru gerðar sérstakar öryggisráðstafanir.

Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þessa till. okkar á þskj. 14, en óska, að henni verði vísað til allshn., og vil skjóta því til n., að 2. tölul. okkar till. og hinar tvær till., sem ég nefndi áður, verði teknar til athugunar samtímis, og munum við allir flm. geta sameinazt um till., og það því fremur, sem fyrir okkur vakir í höfuðatriðunum það sama.