02.09.1942
Sameinað þing: 12. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 146 í D-deild Alþingistíðinda. (1191)
18. mál, undanþága frá greiðslu á benzínskatti
Ingólfur Jónsson:
Ég get ekki séð, hvað er hlægilegt við þessa till. á þskj. 18. Mér finnst ekki nema eðlilegt, að þau héruð, sem hafa alveg sérstaklega erfiða aðstöðu um flutninga, fari fram á, að af þeim verði létt benzínskattinum. Við vitum, að ríkissjóður veitir styrk til strandferða kringum landið, og þetta er vissulega mjög sambærilegt. Héruðin austanfjalls verða að flytja allar vörur sínar á bifreiðum allt frá l00–300 km veg, en þau fá engan styrk í þessa flutninga, heldur verður að greiða 8 aura á hvern lítra í benzínskatt. Mér finnst þess vegna engin goðgá, þó að við höfum flutt þessa þáltill. á þskj. 18. Nú flytja 3 þm. aðrir þáltill. á þskj. 32 um það að fá flutningastyrk fyrir þau héruð, sem þurfa að flytja vörur sínar 80 km eða lengra. Ég vil ekki segja, að þessi till. sé beinlínis afleiðing af till. okkar, en ég vil þó segja það, ef sú till. næði fram að ganga, að þá gæti ég með góðri samvizku fallið frá minni tillögu.
Hv. þm. V.-Sk. talaði um það, að það væri erfitt að finna rétt takmörk hvað vegalengd snerti. Ég vil í því sambandi aðeins minnast á það, að í till. á þskj. 32 er gert ráð fyrir 80 km, en ég held, að það væri heppilegra, að það væru 77 km, þ. e. a. s. að Þjórsá. Annars skal ég ekki fjölyrða meir um þetta mál, ég vil aðeins endurtaka það, að ég mun ekki binda mig við þessa till., ef hin reynist heppilegri eftir nánari athugun.
Ég vil svo að síðustu aðeins benda hv. þm. V.-Sk. á það, að hann flutti á sínum tíma, ef ég man rétt, till. um afnám benzínskattsins fyrir þessi hafnlausu héruð austanfjalls. Hann þarf því ekki að undra það, þó að þetta mál sé hér til umræðu.