02.09.1942
Sameinað þing: 12. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 153 í D-deild Alþingistíðinda. (1201)

18. mál, undanþága frá greiðslu á benzínskatti

Bjarni Benediktsson:

Ég talaði nú ekki sem siðameistari, heldur sem lærisveinn við fótskör þeirra góðu siðameistara, sem fyrir eru. En ég vildi skjóta því til hv. þm. V.-Sk. (SvbH), ef hann er trúaður á það, sem hann heldur fram, þá ætti hann að ryðja því úr vegi, sem hv. 1. þm. Eyf. hélt fram í hv. Ed., því að annars skilst mér, að hann (SvbH) bendi til þess, að hv. 1. þm. Eyf. hafi rangt fyrir sér.