20.08.1942
Sameinað þing: 6. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 155 í D-deild Alþingistíðinda. (1213)

26. mál, tryggja bjargræðisvegs vinnuafls

Flm. (Sigurður Bjarnason):

Herra forseti. — Till. sú til þál. um ráðstafanir til að tryggja íslenzku bjargræðisvegunum vinnuafl, sem fyrir liggur, er borin fram vegna þeirrar staðreyndar, að skortur er á vinnuafli í landinu, fyrst og fremst til landbúnaðarframleiðslunnar, en einnig við sjávarútveginn hefur orðið vart við verulegan skort á því, að hægt sé að manna fullkomlega skipin til veiða.

Við flm. höfum aflað okkur upplýsinga frá Fiskifélagi Íslands, og það er auðséð af þeim, að um samdrátt er að ræða í útgerðinni á Suðvesturlandi. Á öðrum stöðum er ekki um áberandi skort á vinnuafli að ræða, en hefur þó gert vart við sig. En verst er ástandið í landbúnaðinum, af því að fólk leitar þaðan mjög til annarrar vinnu. Samkv. upplýsingum í grg. till. okkar hefur verið unnt að sinna aðeins örfáum umsóknum frá bændum um liðstyrk til landbúnaðarstarfa. Þó að hlutfallið milli þeirra beiðna, sem hægt var að fullnægja, og þeirra, sem komu, sé 300:1000, er ástæða til að ætla, að mörg hundruð fleiri bændur skorti vinnuafl, þar eð ráðningarstofan varð að láta í veðri vaka, að þýðingarlaust væri að senda beiðni um aðstoð hennar í þessum efnum. Það er því vá fyrir dyrum, og því auðsærri sem á slíkum tímum er sérlega rík nauðsyn á því, að matvælaframleiðslan dragist ekki saman. Auk þess er öllum ljóst það öfugstreymi, að bjargræðisvegirnir afrækist á meðan fólkið flýr til starfa, sem ekki skapa þjóðinni verðmæti.

Ég kem þá að fyrri mgr. þáltill., að hafnir verði samningar við verklýðsfélögin til að reyna að draga úr hinni óheillavænlegu þróun málanna, sem ég hef lýst. Það er vitað, að verkalýðsfélögin eru sá aðili, sem miklu getur ráðið í samvinnu við ríkisstj. og önnur yfirvöld um það, að vinnuaflið verði réttilega hagnýtt, og ég vil taka undir þau ummæli hv. síðasta ræðumanns, að það hefði betur fyrr verið gert. Hitt er ég honum ósammála um, að jafnhliða framleiðslustörfunum beri að líta á landvarnarvinnuna sem nauðsynlegar framkvæmdir fyrir Íslendinga. Hv. þm. taldi, að við hefðum tekizt á hendur skyldur, þegar samið var um herverndina. Ég hygg, að eitt meginatriðið í þessum samningi við hið erlenda herveldi hafi verið það, að þjóðinni yrði tryggð vernd, án þess að hún sjálf þyrfti að leggja svo að sér, að bjargræðisvegir hennar biðu hnekki.

Það er á það drepið í þáltill., að jafnframt því sem samninga sé leitað við verklýðsfélög, e. Alþýðusambandið og aðra aðila, leiti ríkisstj. stuðnings Búnaðarfélags Íslands, Fiskifélags Íslands o. s. frv. Ég hygg, að þetta sé sjálfsagt og nauðsynlegt. Þessir aðilar hafa vitneskju um fjölmargt, sem nauðsynlegt er að styðjast við. Þeim er ljósust þörfin.

Ég sé ekki, að ástæða sé til að láta miklu fleiri orð fylgja till. okkar hv. 5. landsk. og hv. 11. landsk. Ég legg áherzlu á tvö atriði, sem þáltill. ræðir um að ríkisstj. hefji samninga við verklýðsfélögin og að hún njóti stuðnings allra þeirra samtaka, sem hér eru nefnd, til þess fyrst og fremst að tryggja íslenzku atvinnulífi vinnuafl, en ekki til dauðra framkvæmda í þágu erlends herveldis. Þannig lítur þjóðin á það, þó að hún hafi óskipta samúð með þeim málstað, sem það herveldi berst fyrir, sem hér hefur her í landi. En hún lítur fyrst og fremst á það, að hún þarf að sigra sjálf á sinum innri vígstöðvum.

Ég vil óska, að þessari till. verði vísað til allshn.