02.09.1942
Sameinað þing: 12. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 157 í D-deild Alþingistíðinda. (1226)
31. mál, flutningastyrkur til hafnleysishéraða
Eiríkur Einarsson:
Mér þykir það ekki sanngjörn afgreiðsla málsins, að þau kaup séu hér gerð að stytta umr. hér gegn því verði, að málinu sé ekki vísað til n. undir þeim kringumstæðum, þegar öðru máli, sem er svo mjög svipað þessu, var einróma vísað til n. Og því fremur finnst mér það sanngjarnt og sjálfsagt að þessu máli verði vísað til hv. fjvn., þar sem þessi þáltill. felur í sér verulegar greiðslur úr ríkissjóði. Ég tók svo eftir, þegar hv. þm. V.-Húnv. var að tala, þá skyti hv. þm. V.-Sk. því fram í, að það væri ekki útilokað — nefnilega það, sem hv. þm. V.-Húnv. var þá að tala um, að þessi styrkur næði til fleiri héraða en hafnleysishéraðanna sunnan lands. Einmitt þetta sýnir, hvað þessi þáltill. er óákvarðandi. Hvar eru þessi hafnleysishéruð? Og að kaupmenn og kaupfélagsstjórar í viðkomandi héruðum eigi að semja reglugerð um þetta, það sýnir, hver lokleysa ákvæði þessarar þáltill. eru.