02.09.1942
Sameinað þing: 12. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 159 í D-deild Alþingistíðinda. (1228)

31. mál, flutningastyrkur til hafnleysishéraða

Flm. (Sveinbjörn Högnason) :

Þar sem hæstv. forseti vill ekki ganga inn á, að þessu máli verði ekki vísað til n., tel ég nauðsynlegt að skýra málið fyrir hv. þm., svo að þeir fáist til að greiða atkv. á móti, að það fari til n. Málið er svo augljóst og fjárveitingin svo sjálfsögð, að ég tel, að hv. þm. geti vel áttað sig á því og greitt um það atkv. án þess, að það fari fyrst til fjvn.

Í sambandi við þá till., sem var á dagskrá hér næst á undan (till. um undanþágu frá benzínskatti), var á það minnzt, hvernig sum héruð hér á landi verða afskaplega ranglega afskipt þeim styrk, sem veittur er til flutninga. Það eru að vísu ekki nema örfá héruð, sem eru alveg afskipt strandferðunum. Það eru aðeins Vestur-Skaftafellssýsla og Rangárvallasýsla, sem eru algerlega hafnlausar, svo að skip koma þar alls ekki við. Flutningskostnaður í sumum þessum héruðum er líka geysilega mikill. T. d. mun hann í Vestur-Skaftafellssýslu vera 18 aurar á kg, og sjá menn, hver viðbót það er á alla þungavöru. Ég hygg, að mörg héruð mundu kveinka sér við þessum kostnaði, ef þau ættu að greiða hann. Það er því svo mikið misrétti að láta þessi héruð greiða hæstan benzínskatt, að við það er ekki unandi, því að þeir, sem mestar hafa vegalengdirnar, verða að greiða hæstan skatt og hafa þar á ofan oft lökustu vegina. Sveitirnar, sem njóta þessara ágætu hafna, eru líka langbezt vegaðar, en afskekktari héruðin, sem eru útilokuð frá höfnunum, verða að notast við langa kafla af aðalþjóðvegunum, sem ekkert er gert við. Þannig er það með langar leiðir á þjóðvegunum í Vestur-Skaftafellssýslu, og þar eru engar vegabætur í sumum sveitunum, og þessi héruð verða að borga hæstan benzínskatt til þess að halda við vegunum hjá þeim, sem bezt eru settir. Þetta er svo herfilegt ranglæti, að það er ómögulegt annað en hver maður vilji ljá því fylgi sitt, að þetta verði leiðrétt.

Á þinginu í fyrra og nú er verið að segja, að í hugum manna sé eitthvert réttlætismál og nú séu menn sérstaklega kjörnir á þing til að framfylgja einhverju réttlætismáli. Hér er sannarlega um réttlætismál að ræða. Hvernig getur það þing, sem segist vera svo önnum kafið við réttlætismál, látið það viðgangast, að haldið sé áfram að níðast á þeim, sem svo illa eru settir? Það er ómögulegt annað en þeir menn, sem segjast hafa svo næma tilfinningu fyrir réttlæti og undanfarin ár hafa samþykkt að leggja stórfé til margs konar hafnarbóta, sjái, að hér er um stórkostlegt misrétti að ræða, sem verður að laga, og ég fullyrði, að allar vegalagningar á landinu eru smámunir samanborið við það fé, sem fer til strandferða og hafnargerða. Þau héruð, sem eru þannig afskipt, eiga því fullan rétt á að fá flutningastyrk eins og hér er farið fram á. Þegar litið er á alla þessa örðugleika, þá sjá menn, að það er fjarstæða að svæfa málið í n. Mig undrar, að slík mál skuli ekki hafa verið tekin til umr. fyrr un í þinglokin, og þá kannske skuli að yfirlögðu ráði eiga að senda það til söltunar í fjvn. Það er ekki heldur neitt einsdæmi, að slík mál séu afgr. nefndarlaust. Við vitum, að fyrir fáum dögum var mál, sem getur komið til með að kosta milljónir, afgr. nefndarlaust, af því að það var svo sjálfsagt réttlætismál. Þegar svo viss meiri hl. er á þingi fyrir því, sem er sjálfsagt réttlætismál, þá er vitanlegur hlutur um svo sjálfsagða till. sem þessa, sem fer fram á að rétta hlut þeirra manna, sem verst eru settir, og kostar ekki meira en 200000 kr., að menn þurfa ekki leiðbeiningu fjvn. um, hvað gera skuli við hana. Þess vegna vil ég afdráttarlaust skora á hv. þm. að greiða því atkv., að till. fari ekki til fjvn., heldur ljúka nú umr. um hana og láta hana fá fullnaðarafgreiðslu næsta dag, því að ef á að hafa þá málsmeðferð að koma henni fyrir kattarnef, þá hlýtur það að þýða það, að þetta þing er upptekið af einhverju öðru en að koma á rétt1ætismálum meðal þegnanna.

Um einstök atriði till. þarf ég ekki að hafa mörg orð. Hv. 10. landsk. sagði við umr. um það mál, sem síðast var hér á dagskrá, að ekki væri rétt að láta kaupmenn og kaupfélög á hverjum stað semja reglugerð um þessi mál, en ráðuneytið hefði ekkert um það að segja. Þetta sýnir, hvaða hálmstrá hann grípur hér í, því að í till. stendur, að ráðuneytið skuli samþykkja reglugerðina. Það er vitað, að langmest af öllum nauðsynjaflutningi fer í gegnum kaupfélögin og verzlanirnar, og þegar líka stendur í till., að setja skuli reglur um, hvernig þessum styrk skuli varið, þá mundu kaupfélögin og verzlanirnar aðallega verða að finna út, hvernig þessu yrði komið fyrir á sem hagkvæmastan og kostnaðarminnstan hátt.

Um þau orð, sem hv. þm. Barð. sagði í sambandi við þessa till., hef ég litlu að bæta við það, sem hv. þm. S.-Þ. sagði. Hann var að tala um vitlausasta veginn, sem lagður hefði verið. Það er nú einkennilegt að tala um vitlausa vegi. Það er öðrum hættara við að verða vitlausum heldur en vegum. Ef ætti að spyrja um, hvaða flokkur eða menn hafi lagt vitlausasta veginn hér á landi, þá vildi ég spyrja á annan veg: Hvaða flokkur hefur lagt til vitlausast málfæri eða við skulum segja vitlausasta framsögu og málflutning? Ég held, að miklu nær sé að spyrja þannig heldur en að tala um vitlausasta veginn. En hvað viðvíkur þeim vegi, sem hv. þm. Barð. telur, að sé vitlausasti vegurinn hér á landi, hann hefur sennilega átt við, að hann væri af litlu viti lagður, — þá hygg ég, að aðrir séu dómbærari um vegaþörf sveitanna austan fjalls en hann, sem hefur hvorki kunnugleika né vilja til að leysa þá örðugleika, sem þar er við að stríða. Eitt af því, sem sýnir gleggst þann rétt, sem þessi héruð eiga á flutningastyrk samanborið við önnur héruð, er það, hvað margar leiðir hafa verið reyndar, til þess að menn væru ekki alveg innikróaðir. Það hefur verið reynd Þingvallaleiðin og Krýsuvíkurleiðin, og enn fleiri leiðir hafa komið til mála. Þetta sýnir, hve dýrt þetta allt er og hversu mikla erfiðleika þessir menn verða á sig að leggja til þess að vera ekki alveg innilokaðir bæði á sjó og landi. En meðan ástatt er eins og nú, er sjálfsögð skylda að níðast ekki á þessum héruðum, eins og gert er nú með þeim benzínskatti, sem þau verða að borga umfram aðra, meðan þau eru afskipt að helmingi eða meira miðað við það, sem lagt er fram annars staðar á landinu. Á ég þar við styrk til samgangna á sjó, hafnargerða og lendingarbóta og annars slíks, sem önnur héruð fá, en þessi héruð fara gersamlega á mis við.

Ég vil því skora á Alþ. að líta á þessa till. eins og hún er, sem sjálfsagt réttlætismál og forðast að vísa henni til fjvn., — þar sem vitað er, að málið mundi daga uppi, — og greiða atkv. á móti því, en samþ. till. við þessa umr. og fá hana til síðari umr. helzt á næsta fundi, sem haldinn verður í Sþ., og láta hana fá þar, fullnaðarsamþykkt, svo að þar með verði létt af einhverju af því ranglæti, sem hefur verið og er í þessum efnum.