04.08.1942
Sameinað þing: 1. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í B-deild Alþingistíðinda. (1243)
Ríkisstjóri setur þingið
Samkvæmt þessu ríkisstjórabréfi lýsti ríkisstjóri því næst yfir, að Alþingi væri sett, og mælti síðan:
„Ég vil biðja alþingismenn að minnast fósturjarðar vorrar, Íslands, með því að rísa úr sætum sínum:“
Þingmenn stóðu upp, og forsætisráðherra (ÓTh) mælti: „Lifi Ísland!“ Tóku þingmenn undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.
Ríkisstjóri kvaddi nú elzta þingmanninn, Ingvar Pálmason, 2. þm. S.-M., til þess að stýra fundi, þar til er kosinn væri forseti sameinaðs Alþingis. Gekk ríkisstjóri síðan út úr salnum.
Aldursforseti gekk nú til forsetastóls og tók við fundarstjórn. Kvaddi hann sér til aðstoðar sem fundarskrifara þá Jóhann Jósefsson, þm. Vestm., og Pál Hermannsson, 2. þm. N.-M.
Rannsókn kjörbréfa.
Þessu næst skiptust þingmenn í kjördeildir, og urðu í
1. kjördeild:
BSt, BBen, BjBj, BFB, BrB EOl, GJ, GSv, IngP, ÍslH, JörB, ÓTh, PO, SB, SEH, SkG, SvbH.
2. kjördeild :
ÁkJ, ÁÁ, BÁ; EmJ, GG, GTh, HelgJ, HermJ, JJ, MJ, PHerm, PZ, PHann, SÞ, StJSt, ÞÞ.
3. kjördeild :
EÁrna, EE, EystJ, FJ, GÞ, HG, IngJ, JakM, JJós, JPálm, PHall, PÞ, SigfS, SK, SÁÓ, StgrA.