20.08.1942
Efri deild: 11. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 87 í B-deild Alþingistíðinda. (142)
7. mál, dómnefnd í verðlagsmálum
Frsm. meiri hl. (Bjarni Benediktsson) :
Herra forseti! Meiri hl. allshn. hefur orðið sammála um að gera lítils háttar breyt. á 3. gr. til samræmingar og leiðréttingar á máli. Að öðru leyti hefur n. ekki orðið sammála um breyt. Ég get ekki fallizt á að fella með l. niður gerða samninga, heldur á að útkljá það mál með frjálsu samkomulagi. Að þessu leyti get ég því ekki verið með breyt., sem stefna að þessu, heldur aðeins með nauðsynlegum lagfæringum til samræmingar, unz samkomulag næst.