20.08.1942
Efri deild: 11. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í B-deild Alþingistíðinda. (152)

7. mál, dómnefnd í verðlagsmálum

Sigurjón Á. Ólafsson:

Þetta mun ekki verða nema stutt aths. En út af fyrirspurn hv. þm. Barð. vildi ég segja það, að undir venjulegum kringumstæðum mundi ég ekki óska eftir svona uppsagnarfresti, ef ekki væri á undan gengin lögþvingun, eins og hér hefur verið bent á. En ég vil hins vegar benda honum á, að við höfum hér í þinginu skapað með löggjöf fordæmi fyrir þessu, þegar kaupgjaldið var lögbundið með gengisskráningarl. 1939. Var Alþ. nokkurn veginn einhuga um, að rétt væri, um leið og þær hömlur voru lagðar á, að veita verkalýðnum frelsi til uppsagnar, en áður hafði verið gert ráð fyrir, að öll verkalýðsfélögin gætu verið laus um áramót, án þess að athugun færi fram á því, hvernig samningar væru að öðru leyti. Þetta stjórnaðist af því, að viðurkennt var, að lagðar væru hömlur á athafnafrelsi verkalýðsfélaganna. Það var þá eins og nú, að Alþ. hafði sett hömlur á félögin, og það átti að gefa þeim tækifæri til að laga þetta. Undir öllum öðrum kringumstæðum en þessum væri ég á móti slíkum lögum.

Ég veit, hvað fyrir hv. þm. Barð vakir. Nú koma krepputímar, og atvinnurekendur krefjast þess af Alþ., að það grípi inn í til þess að bjarga atvinnuvegunum, og ég veit, að undir þessum kringumstæðum getur þetta fordæmi orðið til óhags fyrir verkalýðinn.