21.08.1942
Neðri deild: 12. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 95 í B-deild Alþingistíðinda. (177)
7. mál, dómnefnd í verðlagsmálum
Skúli Guðmundsson:
Ég er sammála hv. þm. Borgf. og tel brtt. hans stefna í rétta átt. Mér finnst mjög einkennilegt, að hæstv. atvmrh. skuli halda því fram, að hún sé í ósamræmi við frv. Þeir, sem vilja afnema kaupgjaldsákvæði l. þessara, hafa haldið því fram, að um þessi mál verði að vera frjálsir samningar, og þess vegna finnst mér ósamræmi í því, að þeir skuli nú vilja fella löglega samninga úr gildi með lagaboði. Ég hygg að öllum sé ljóst, hvernig ástandið er nú í þessum málum. Skipin liggja óafgreidd við hafnarbakkann hér í Rvík, þegar mjög erfiðlega gengur að fá skip til þess að flytja vörur að og frá landinu. Ef þetta bráðabirgðaákvæði verður samþykkt, þá mun svo fara, að það ófremdarástand, sem nú ríkir í Rvík, breiðist út yfir allt landið. Mér finnst óviðeigandi af Alþ. að stuðla að slíku með því að ógilda samninga á þennan hátt.