12.08.1942
Efri deild: 5. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 97 í B-deild Alþingistíðinda. (192)
29. mál, hafnarlög fyrir Grundarfjörð
Atvmrh. (Magnús Jónsson) :
Á norðanverðu Snæfellsnesi hagar svo til, að í rauninni er ekki til hentugt skipalægi nema á Grundarfirði í Eyrarsveit. Að vísu þarf ekki að efast um, að þetta er tiltölulega öruggt skipalægi, og þangað er hægt að leita, þegar dimmt er, en á plássunum, Sandi og Ólafsvík, eru aftur á móti hafnleysur, þó að þar hafi verið gerðar hafnarbætur. Þar sem skipin geta legið óhult á Grundarfirði, þó að vont sé veður, virðist það einkennilegt, að þar skuli ekki hafa risið upp kaupstaður, en ég skal ekki nú rekja ástæðurnar til þess, að svo hefur ekki orðið. Nú er hins vegar greinilegt, að miðstöð þessarar sveitar er að færast inn í Grafarnesið. Þar eru góð skilyrði til hafnarbóta, og þar er að komast á vegarsamband við Stykkishólm. Á þessum stað er að vísu bryggja, en hún er alveg ófullnægjandi stærri flutningaskipum, svo að þarna er mikil þörf lendingarbóta. Það liggja fyrir uppdrættir og mælingar frá þessum stað, að ég ætla frá árinu 1931. Eins og ég hef tekið fram, eru þarna mjög góð skilyrði, þannig að það þarf ekki að byggja stórkostlegan sjóvarnargarð, eins og mundi þurfa á Sandi og í Ólafsvík. Það má auk þessa geta þess, að á þessum stað hefur verið reist stórt og myndarlegt frystihús, og það er beinlínis í sambandi við það fyrirtæki, að hreppsnefnd Eyrarsveitar er byrjuð á hafnargerð á þessum stað. Það, sem aðallega skortir á til þess að koma verkinu áfram, er ríkisábyrgð. Það hefur því verið farið fram á það við ríkisstj., að hún tæki á sig nokkra ábyrgð í þessu máli, en við þeirri ósk er ekki hægt að verða nema með því að setja regluleg hafnarlög fyrir þennan stað, og það er það, sem þetta frv. fer fram á. Þó að í þessu frv. sé talað um mannvirki, sem kosti 500 þús. kr., þá er það alls ekki meiningin að ráðast í það fyrirtæki allt í einu. 100 þús. kr. mannvirki ætti til bráðabirgða að bæta mikið úr þeirri þörf, sem þarna er nú í bráð. — Ég held svo, að sé ekki þörf á því að fara fleiri orðum um þetta frv., það er að mestu sniðið eftir öðrum hafnarl., sem hæstv. Alþ. hefur sett. Ég vil svo leyfa mér að óska eftir, að frv. verði vísað til 2. umr. og sjútvn. þessarar deildar.