07.08.1942
Neðri deild: 3. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 103 í B-deild Alþingistíðinda. (229)

1. mál, stjórnarskipunarlög

Eysteinn Jónsson:

Ég vildi mælast til þess við hæstv. forseta, að aths. mínar um það, hvort n. skuli kosin í málið, reiknist umr. um dagskrá, en ég haldi ræðutíma mínum, ef við verðum neyddir til að hafa umr. almennt um málið við 1. umr. Ég vildi spyrja hæstv. forsrh., hvenær hann gerði sér vonir um, að þingstörfum geti orðið lokið. Við framsóknarmenn erum ekkert hrifnir af þessu þinghaldi í sumar, ef verkefnið á að verða það eitt, sem ríkisstj. og stuðningsflokkar hennar hafa boðað, og vildum ljúka því sem fyrst. Ég lýsi yfir því, að flokkurinn mun ekkert gera til að tefja stjórnarskrármálið. Enda er vitað, að það var síður en svo, að hann tefði afgreiðslu þess á síðasta þingi, sat hjá, er veitt voru afbrigði um afgreiðslu, nm. hans skiluðu nál. á undan stuðningsmönnum þess, og þrátt fyrir ákveðna andstöðu við málið var ekkert gert til að draga það á langinn. Því síður langar okkur til þess nú, og þingið á ekki að þurfa að standa lengur en stuðningsflokkar frv. vilja, að það standi. Þetta mál hlýtur að verða ákaflega afgerandi um það, sem gerist í íslenzkri pólitík næstu mánuðina, og krefst því sérstakrar íhugunar í sambandi við það viðhorf, sem nú er. Ég ætlast til þess, að yfirlýsing mín sé tekin gild, og legg áherzlu á, að fallizt verði á þessa sanngjörnu uppástungu um nefndarskipun.