07.08.1942
Neðri deild: 3. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 104 í B-deild Alþingistíðinda. (234)

1. mál, stjórnarskipunarlög

Eysteinn Jónsson:

Það er ákaflega auðvelt úrræði til að ljúka umr. á þessum fundi að kjósa n. og ræða málið almennt við 2. umr., en við framsóknarmenn höfum látið uppi, að við tökum ekki frekar til máls við þessa umr., ef svo er gert. Og hvaða áhætta er að fallast á þetta?