14.08.1942
Neðri deild: 7. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 108 í B-deild Alþingistíðinda. (241)
1. mál, stjórnarskipunarlög
Áki Jakobsson:
Ég vil með nokkrum orðum skýra afstöðu míns flokks til frv. þess, sem hér liggur fyrir, þar sem ég hef átt sæti í þeirri n., er um málið fjallaði.
Afstaða Sósfl. til stjskrbreyt. er sú sama og hún var á síðasta þingi, þegar mál þetta var þrautrætt, og að áliti hans kemur ekki til mála að breyta einum stafkrók í því á þessu þingi.
Það er þó svo með stjskrbreyt. þessa, að það mun sýna sig, sem sósíalistar sýndu fram á, að hún mun ekki verða til þess að bæta til fullnustu þann órétt, er átt hefur sér stað í kjördæmafyrirkomulagi voru, og að þessi breyt. getur ekki orðið nema til bráðabirgða. En það er ræða hv. þm. V.-Sk., er gefur mér tilefni til frekari skýringar á máli þessu og afstöðu Sósfl. til þess.
Framsfl. hefur sent Sósfl. bréf sem og til hinna tveggja flokkanna, er að stjskrbreyt. standa. Í því bréfi málar Framsfl. núverandi ástand með hinum svörtustu litum og segir, að í algert öngþveiti sé stefnt, ef stjskrbreyt. sé ekki stöðvuð nú þegar, og að Framsfl. fái tækifæri til að vinna með öðrum þingflokkum að lausn vandamálanna. Svarið, sem Framsfl. fær svo frá öllum þremur flokkunum, er á þá leið, að flokkarnir séu fúsir til að vinna sameiginlega að lausn aðkallandi vandamála, en að þeir geti á engan hátt fallið frá stjskrbreyt. Það, sem á milli ber, er að Framsfl. vill fá 4–5 þm. umfram það, sem honum ber og hinir flokkarnir vilja, að hann fái Framsfl. gengur svo langt í þessu máli að fara með taugastríð á hendur hinum flokkunum og reynir bókstaflega allt til þess að fá flokkana ofan af fyrirætlunum sínum. Bréfið, sem Framsfl. skrifaði, er algert einsdæmi og hámark stráksskapar í opinberum málum, og þó kastar tólfunum, er þeir birta bréfið frammi fyrir alþjóð.
Það er alvarlegt ástand í þjóðmálum okkar, um það eru allir sammála. Það er erfitt að halda atvinnulífi þjóðarinnar gangandi, en fari svo, að það reynist ekki kleift, gæti svo farið, að hinn erlendi her sæi sig neyddan til þess að grípa inn í þau mál.
Þegar þjóðstj. tók við völdum, byrjaði hún með því að lækka kaup launþeganna í landinu, jafnhliða því sem bröskurunum voru veittar skattaívilnanir og jafnvel skattfrelsi, lét stríðgróðamennina takmarkalaust safna að sér auðæfunum svo millj. skipti, í stað þess að hefta stríðsgróðann, en þó náði ósvífnin hámarki sínu hjá þjóðstj., er hún setti gerðardóminn á, en þá komst glundroðinn í algleyming. Þegar ekki var lengur hægt að framfylgja gerðardóminum með íslenzkum ráðum og núv. ríkisstj. lagði því til, að hann skyldi afnuminn, eru framsóknarmenn þeir einu, sem eru því mótfallnir, og af þessu má eðlilega álykta, að þeir hafi hugsað sér eitthvað annað vald en íslenzkt vald til þess að framfylgja honum, þegar það er vitað mál, að það er ekki mögulegt á annan hátt. Þetta bendir ótvírætt í þá átt, að þeir hafi hugsað sér aðstoð hins erlenda valds, sem í landinu er, til þess að framfylgja gerðardóminum. Þessi afstaða Framsfl. er alveg dæmalaus, og það er líklega alveg rétt, sem sagt hefur verið um Framsfl., að ekki hafi þekkzt annar eins flokkur í landinu síðan á Sturlungaöld. Það væri rétt í þessu sambandi að rifja lítið eitt upp sögu þessa flokks. Hann komst í stjórnaraðstöðu, eins og kunnugt er 1927 og hóf þá strax þá stefnu sína að hrifsa til sinna flokksmanna hlunnindi þau, er hann komst yfir, svo og einnig til þeirra, er hann hafði von um að geta gert sér fylgispaka. Svo horfa þeir upp á það með skelfingu, ef kjördæmaskipunin verður leiðrétt og þessi hlunnindi, er þeir hafa skapað sér, af þeim tekin, þannig að þeir verði jafnréttháir öðrum þegnum þjóðfélagsins, hvað þá heldur, ef þeir skyldu verða beittir sömu aðferðinni af stjórnarflokkum og þeir beittu sjálfir allt frá 1927.
Þó að Framsfl. hafi 20 þm., þá getur hann ekki samið við neinn hinna þingflokkanna og reynir því að koma af stað meiri glundroða í þjóðfélagsmálum okkar heldur en annars þyrfti að vera. Með því móti virðist stefnt að því ,að ameríski herinn fái tækifæri til þess að grípa inn í innanríkismál vor í því skyni að stöðva glundroðann. Þetta gengur svo langt, að þeir eru með sífelldar hótanir, ef ekki verði gengið að kröfum þeirra. Og það er varla hægt að hitta þá í þinggöngunum hérna, svo að þeir spyrji ekki: Hve nær kemur ráðsmaður inn? Hvaða ráðsmaður? Nú, ráðsmaðurinn að vestan. — Framsfl. virðist með þessu háttalagi sínu vera að fara út á braut landráðastarfsemi, og það munu ekki vera allir framsóknarmenn, er gera sér þess ljósa grein, hvert valdamenn flokksins eru að leiða hann. En hótanir Framsfl. hafa engin áhrif á sósíalista. Þeir munu fara sínu fram, hvað svo sem Framsfl. segir. En við viljum og teljum okkur skylt að vara við þeirri hættu, er af Framsfl. og starfsemi hans nú stafar. En það þurfa hv. þdm. að gera sér ljóst, að þrátt fyrir þessa hættu er stöðvun kjördæmamálsins það versta, sem gert yrði. Sósíalistar eru tilbúnir að ræða við hina flokkana um hvers konar samstarf, til þess að vér reyndumst þess megnugir að stjórna oss einir og að ekki komi til, að erlent vald grípi hér stjórnartaumana.
Ég dreg það mjög í efa, að amerísku herstjórninni sé gerður með því nokkur greiði að vera að gefa henni tilefni til þess að blanda sér inn í stjórn landsins. Ég býst við því, að hún kæri sig ekkert um þær hótanir, sem Framsfl. hefur hér í frammi, heldur vilji sem bezta sambúð og samvinnu við stj. þessa lands.
Að lokum vil ég taka það fram, að í kjördæmamálinu má hvergi hika, og sósíalistar munu fylgja því fast fram, að því verði lokið á svo skömmum tíma sem mögulegt er.