14.08.1942
Neðri deild: 7. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 114 í B-deild Alþingistíðinda. (243)
1. mál, stjórnarskipunarlög
Frsm. meiri hl. (Ásgeir Ásgeirsson) :
Hv. síðasti ræðumaður fór að bera saman sæmd mína og annarra fylgismanna frv. annars vegar og sæmd þjóðar innar hins vegar. Í viðbót við þann tvöfalda atkvæðisrétt, sem hann áskilur sínum flokksmönnum, þykist hann hafa einkarétt á þjóðinni og öllu, sem henni við kemur. Það er rétt, að okkar sæmd, sem fylgjum þessu frv., er undir því komin, að við fylgjum þessu máli áfram. Þjóðin er búin að kveða upp sinn úrskurð. Og það væri að reiða aftan að þjóðinni, ef við brygðumst í þessu máli, sem við höfum forustu um.
Annars veit ég yfirleitt ekki, hvað þessi hv. þm. kallar þjóð. Hann er alltaf með hana á vörunum, og þó getur hann aldrei vitnað í, að það séu meira en 16 þúsund atkv. á bak við þá, sem eru á móti þessu máli, en það eru meira en 40 þús. atkv. með málinu. En svo kemst þessi hv. þm. stundum að þeirri niðurstöðu, að langbezt yrði fyrir Framsfl., ef þessu máli verður haldið áfram. Mér skilst hann telja, að Framsfl. mundi græða á því. Og þá vil ég leyfa mér að bæta þessum 16 þúsund atkvæðum við þessi 40 þús. og tala um þetta sem mál þjóðarinnar. Að vísu voru það ákaflega hæpin rök, sem hann færði fyrir því, að framsóknarmenn hefðu flokkslegt gagn af þessu frv., — hæpin frá hans sjónarmiði, en ekki öðru sjónarmiði. Hann heldur því sem sé fram, að ef nú er hætt við þessa breyt., þá verði síðar gerð önnur breyt., sem verði miklu erfiðari fyrir flokkshagsmuni framsóknarmanna. Og ég gæti trúað því, að ef hlaupið yrði frá þessu máli nú, að þær till., sem síðar kæmu um að jafna rétt þegnanna á þessu sviði, mundu ganga meir inn á að taka sér réttindin að fullu í burt. Og ef það er bezt fyrir Framsfl., að málið gangi fram nú, þá skil ég ekki allt þetta pex á móti málinu.
Það er rétt, að ég hef starfað hér um tíma á þingi. Út frá því ætlaði hv. þm. mér að skilja, að þing sé óstarfhæft fyrir kosningar. En þessi sami framsóknarmaður var ekki hræddur við kosningar í vor sem leið og var einn af þeim, sem tóku þátt í því í febr. að samþ. að gangast fyrir því að hætta við kosningafrestunina. En nú eiga kosningar allt í einu að vera orðinn þessi skelfilegi voði. Þegar ástandið er alvarlegt, eins og nú er, þá geri ég sömu kröfu til framsóknarmanna eins og annarra, að þeir hegði sér við kosningarnar rétt eins og þeir ætla síðar að gera í þinginu sjálfu. En í tali hv. þm. hlýtur að liggja nokkur grunur um, að erfitt muni verða fyrir suma menn að haga sér sómasamlega við kosningarnar.
Hv. þm. talaði sífellt um flokkshagsmuni og flokksniðurstöðu. En ef við lítum á það, að þrír flokkar, sem ekki eru vanir að starfa saman, standa að þessu máli, þá hlýtur í því máli að vera eitthvað, sem nær út yfir sérhagsmuni flokkanna. Og þegar einn flokkur berst á móti einhverju sérstöku máli, þá sýnir það, að hann muni hafa einhverja sérhagsmuni gegn þeim þremur flokkum, sem fara út fyrir sin flokkstakmörk, af því að þeir halda á máli sem rétturinn stendur á bak við.
Hv. þm. var að tæpa á kosningafrestun og öðru slíku. En ég hélt, að flestir þm., sem stóðu að þessari einu kosningafrestun, sem hér hefur orðið, hafi fengið nóg af slíku. Árið næsta á eftir er ekki til fyrirmyndar. Það, sem þá gerðist, á mestan þátt í þeirri upplausn, sem við getum kennt innlendum öflum. Það var strax eftir að kosningafrestunin var ákveðin í fyrra, sem sá tónn kom upp, að nú væri hægt að lækna öll mein með því að stöðva launahækkun. Og þessi byrjun óx, þangað til hámarkið varð með kaupbindingardómnum við síðustu áramót. Eftir að hafa þannig lagt höfuðáherzluna á kaupbindingu launamannanna, koma framsóknarmenn og bjóða upp á að sameinast um að taka milljónirnar af milljónamæringunum. Mér skilst, að þeir hugsi sér nýja verzlun við aðra flokka, hann vilji fara ofan í vasa milljónamæringanna með þeim, ef hann fái að halda valdaaðstöðu sinni. (SvbH: Vill hv. þm. ekkert gera fyrir ekki neitt?) Ég var að tala um skilyrðin fyrir að taka milljónirnar af öðrum. Fyrst er talað um, að ef Framsfl. skipti sér af almennum vandamálum, þá verði að fella niður kjördæmafrv. Nú er nefndur þessi möguleiki, að taka eignir af mönnum, sjúga þær meira upp, a. m. k. ef þessi framsóknarmaður fær að halda sínum sérréttindum. En veit hann ekki, að með jöfnun í pólitískum völdum fer venjulega og hér um bil alltaf líka jöfnun í fjárhagslegum efnum. Það er því ekki hægt að koma hér og bjóða upp á meiri peninga handa þeim, sem verr eru settir, og láta aðra um leið halda sinni sérstöðu um sjálf völdin. Það þarf ekki að tala um þetta frv. sem neinn hátíðamat, en það er enginn vafi, að með samþykkt þess verður réttur þegnanna jafnari en áður, en það er í því fulla trausti, að þetta mál er fram borið og fram flutt, þar til yfir lýkur, hvað sem í boði er um að taka fé af milljónamönnum eða um þátttöku í almennum málum á þessum hættulegu tímum.