14.08.1942
Neðri deild: 7. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í B-deild Alþingistíðinda. (244)
1. mál, stjórnarskipunarlög
Áki Jakobsson:
Það var viðbúið, að svarað yrði með þessum gömlu rökum um, að við sósíalistar værum umboðsmenn Rússa. Það er nú orðið svo útþvælt mál, og hefur ekkert nýtt komið þar fram, að ekki þarf að eyða orðum til að svara því, þó að hv. þm. V.-Sk. hafi nú enn komið með það fram. Það er búið að nota fleiri dálka í blöðum allra flokka til að breiða þetta út allt síðan 1937, en dæmi eru til um nokkurt annað mál, en árangurinn hefur sýnt sig að vera minni en enginn. Þjóðin vill ekki hlusta á svona kjaftæði. Þetta slúður er fundið upp til að komast hjá að svara gagnrýni okkar á þær misfellur, sem verið hafa á stjórnarfarinu, og er sama um það að segja hjá hv. þm. V.-Sk., að hann vill ekki fara inn á það mál, sem ég ræddi hér, líklega fyrir það, að ég hef ekki átt hér eins langa setu og hann, heldur fór að tala um Rússland, að ég væri Rússasinni o. s. frv. Ég vil aðeins í þessu sambandi benda á, að frá flokki þessa hv. þm. sitja hér á þingi 20 menn, en frá þeim, sem hann telur dansa eftir pípu Rússa, 6 menn, sem hafa hver um sig helmingi fleiri kjósendur bak við sig en þm. úr flokki hans. Við höfum því fyllilega sama rétt til að tala í nafni þjóðarinnar, og hún hefur sýnt við síðustu kosningar, að hún telur þessa menn fulltrúa sína.
Það var auðheyrt á ræðu hv. þm., að rökin voru honum erfið, t. d. þegar hann var að halda fram, að ekki hefði komið í ljós við kosningarnar vilji kjósendanna í kjördæmamálinu. Hvernig er hægt að skýra þetta? Kjördæmamálið var aðalumræðuefni framsóknarmanna á hverjum fundi, og ég veit, að þeir hafa unnið nokkuð frá öðrum flokkum einmitt á því máli. Ég veit, að sú lækkun, sem varð á fylgi Sjálfstfl. í dreifbýlinu, varð fyrir það, að slegið var á allra lægstu strengi þessara kjósenda og talað um, að þeir ættu að hafa tvö- og jafnvel fimmfaldan rétt á við kjósendur í Reykjavík, eins og sum kjördæmin hafa. Það þarf þroskaða Íslendinga til að standast slíkan áróður og láta það ekki snerta sig, þegar honum er beitt með öllum þeim sniðugheitum, sem þessi Framsfl. á til. Og þegar svona mikill hluti kjósenda, 40 þús. af 56 þús., lýsir yfir því, að hann sé með þessari breyt., þá getur ekki verið neinn vafi, hver vilji þjóðarinnar er. Það er vissulega að ganga á móti skýlausum vilja þjóðarinnar, ef þetta mál væri lagt á hilluna, þrátt fyrir þessi kosningaúrslit. Við það mundi skapast hið mesta öngþveiti. Það yrði slík almenn reiði hjá öllum bæjarbúum, sérstaklega í Reykjavík, ef farið væri eftir till. framsóknarmanna.
Afstaða framsóknarmanna til mála mótast alltaf af persónulegum hagsmunum forustumannanna, eða þrengstu flokkshagsmunum. Og það er eðlilegt, því að Framsfl. er byggður upp með bitlingapólitík. Hvað yrði úr Framsfl., ef hann missti yfirráðin yfir gjaldeyrinum, yfir bilunum, yfir embættaveitingunum? Hvað yrði úr Framsfl. eftir það? Foringjar flokksins vita það. Þá ætti flokkurinn enga framtíð. Hann verður að halda áfram að vera í stjórnaraðstöðu, svo að hann geti aflað sér fylgis með því að miðla hvers konar hlunnindum til hægri og vinstri. Þess vegna neytir hann allra bragða og meira að segja leggst svo lágt að skrifa þetta bréf til hinna flokkanna. Hann sér fram á, að hann getur ekki lifað í stjórnarandstöðu. Þrátt fyrir öll hreystiyrðin í útvarp fyrir síðustu kosningar og á Alþ. fyrir síðustu þingslit leggst hann nú svo lágt að vilja skríða til stjórnarsamvinnu við Sjálfstfl. eða Alþfl. eða einhverja. Hann veit, hvað við liggur fyrir hann, og þess vegna gengur hann svo langt, að hann hikar ekki við að setja sjálfstæði landsins í voða, ef hann gæti látið valdadrauma sína rætast með því móti. Ég tel, að hv. þm. V.-Sk. hæfi vel málstaður þessa flokks.
Ég sé ekki ástæðu til að elta ólar við það aurkast, sem hann hefur hafið til mín og flokksmanna minna. Ég vil þó víkja nokkrum orðum að ræðu hans. Hann sagði, að núv. stj, hefði ekkert gert til að taka stríðsgróðann úr umferð, og það er satt. En ég vil benda á, að Framsfl. fór ekki úr ríkisstj. vegna þess, að hann vildi taka stríðsgróðann úr umferð. Það var kjördæmamálið, sem var eina ástæðan fyrir því, að hann sleit stjórnarsamvinnunni við Sjálfstfl. Þeir voru sammála Sjálfstfl. um öll mál nema kjördæmamálið, og þess vegna slitnaði samvinnan. Og þrátt fyrir öll hreystiyrðin um, að þeir væru ábyrgur flokkur, sem vildi ekki hlaupa frá ábyrgðinni á stund hættunnar, þá hlupu þeir frá öllu til að hindra þessa sjálfsögðu lagfæringu á kjördæmaskipuninni. Það er rétt, að við sósíalistar vorum ekki daprir yfir, að þessi þjóðstjórn fór. Sú stj. var á hraðri leið til glötunar með þjóðina. Hún tók ekkert tillit til hagsmuna launastéttanna, ekkert tillit til hagsmuna almennings, heldur gætti hagsmuna gróðamannanna og gaf þeim lausan tauminn til að steypa þjóðinni út í vandræði. Það var því til góðs, að sú stj. fór. Það þarf að skapa samtök, sem meira tillit taka til þjóðarhagsmuna en sú stj.
Ég vil svo enn þá einu sinni skora á alla þm. að láta hvergi bilbug á sér finna. Það er beinlínis lífsspursmál fyrir okkar þjóð, að þessu máli verði fylgt fast eftir og afgr. svo fljótt sem mögulegt er.