14.08.1942
Neðri deild: 7. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 120 í B-deild Alþingistíðinda. (246)

1. mál, stjórnarskipunarlög

Sigfús Sigurhjartarson:

Herra forseti! Mér þykir rétt og skylt að þakka hv. þm. V.-Sk. þá kennslustund, sem hann veitti mér og öðrum nýliðum á þingi í þinglegri hegðun, Og það því fremur sem kennsla hans var einkum miðuð við minn flokk.

Mér þykir einnig rétt og skylt að fara nokkrum orðum um tal þessa hv. þm. um afstöðu flokks míns til erlendra ríkja, en áður en ég hef þakkargerð mína til þessa virðulega þm., verð ég að fara nokkrum orðum um málið sjálft.

Það mál, sem hér liggur fyrir, var rætt ýtarlega á síðasta þingi og niðurstöður þess lagðar fyrir þjóðina sem heild, með þeim árangri, að nær 75% kjósenda tjáðu því fylgi sitt við kosningarnar. Málið er því afgreitt. Þingið á aðeins eftir að leggja formlega hönd á það, og ef það lætur það dragast úr hömlu, hefur það svíkið þjóðina. Þetta eru svo augljósar staðreyndir, að það sætir furðu, að um það skuli vera deilt. En hv. þm. V.-Sk. vill blanda óskyldum málum hér inn í, málum, sem þingið á vissulega að ræða og vissulega að leysa. Hætta vofir yfir þjóðinni af sívaxandi verðbólgu, sem leiðir til vinnudeilna og vinnustöðvunar. Það hefur verið bent á, m. a. af hv. þm. V.-Sk., að afleiðingin geti orðið íhlutun erlends valds. Þetta er því miður alvarleg staðreynd, og ég undirstrika það, að það er skylda allra þm. að íhuga það mál af gaumgæfni og hafa samstarf um að reyna að forða þeirri vá, sem er fyrir dyrum. En bæði málin ber að leysa, kjördæmamálið og verðlags- og kaupgjaldsmálið. Talsmenn Framsfl. koma fram fyrir þingheim og segja: Síðari vandann viljum við leysa, ef þingið svíkst um að leysa hinn fyrri.

Það er e. t. v. illa séð hér í hv. d. að nefna hlutina afdráttarlaust sínum réttu nöfnum. En rétta nafnið á framkomu Framsfl. er loddaraskapur. Til þess að finna þessum orðum stað, verð ég að rifja upp afstöðu flokksins til þessara mála. Það er í fyrsta lagi augljóst, að undirrót vandamála okkar er hin mikla verðbólga í landinu. En hver er orsök hennar? Safnazt hefur geysimikið fé jafnhliða því sem takmarkast tækifærin til að fullnægja kaupgetu og kauplöngun stríðsgróðamanna. Eftirspurnin eftir vörum er takmarkalaus, en takmarkað það, sem hægt er að kaupa. Launastéttirnar hafa ævinlega búið við skarðan hlut, en gera nú nokkrar kröfur, þegar stríðsgróðinn flæðir yfir landið. Þeim kröfum bar að mæta með sanngirni eftir frjálsum samningaleiðum, en taka fyrir stríðsgróðamyndun hjá einstökum mönnum. Þetta var eina leiðin til stöðvunar verðbólgunni. En Framsfl. þóknaðist ekki að fara þessa viturlegu leið. Launastéttunum mætti hann með hinum svörtustu þrælalögum, sem landslýður hefur átt við að búa. Ég á hér auðvitað við gengislögin alkunnu. Af þessu hlaut að leiða eins konar upplausn á sviði kaupgjaldsmálanna. Það þurfti að hrinda þeim þrælalögum, sem Framsfl. og Sjálfstfl. báru ábyrgð á, og mér er nær að halda, að Framsfl. ber í þar bróðurpartinn af ábyrgðinni. Flokkur, sem á þessa forsögu, kemur nú fram fyrir þingheim og segir : „Herrar mínir, nú er allt að fara í öngþveiti, við verðum að taka höndum saman og reyna að koma í veg fyrir verri voða. Ég skal vera með, ef það mál verður stöðvað, sem þjóðin hefur krafist lausnar á: Slík framkoma er ekki samboðin ábyrgum stjórnmálaflokki.

Það hefur verið talað um það af andstæðingum kjördæmamálsins, að það væri aðallega til framdráttar einum stjórnmálaflokki, Sjálfstfl. Þetta er vitleysa. Kjördæmamálið felur í sér að gera jafnan rétt kjósenda í landinu, hvers flokks sem þeir eru. Sporið er að vísu ekki stigið nógu rækilega, ekki fundið ráð til fullkomins jafnréttis. Ef t. d. Framsfl. aflar sér kjósendafylgis, sem gefur honum aðstöðu til sterks meiri hl. á þingi, þá á hann að hafa meiri hl., en flokkur, sem hefur fjórða hluta af kjósendum á bak við sig, á ekki að vera sterkasti flokkurinn í þinginu, hvað sem hann heitir. Þetta er einfalt mál og auðskilið.

Ég vil þakka kennslu hv. þm. V.-Sk. til okkar þm. Sósfl. Meginhlutinn af því, sem ég hef heyrt til þessa hv. þm., hefur verið mér lifandi kennsla í því, hvernig þm. á ekki að haga sér.

Hv. þm. V.-Sk. hefur í undanförnum ræðum verið að kenna okkur nýliðunum, og þá sérstaklega okkur þm. Sósfl., hvernig við eigum að haga okkur. Hann er sífellt að tala um línuna frá Moskva, sem við dönsum eftir, að hans sögn, og gengur jafnvel svo langt að segja, að okkar föðurland sé ekki Ísland, heldur allt annað. Allt slíkt tal er auðvitað blekking. Okkar flokkur er ekki í neinu erlendu flokkasambandi né tekur heldur á móti neinum fyrirskipunum frá erlendu valdi, — hann fer aðeins eftir vilja kjósenda sinna hér á landi. Ef til vill hefur þetta Rússlandstal varpað einhverjum dýrðarljóma á hv. þm. V.-Sk. og flokk hans áður fyrr, en þeir tímar eru liðnir, og þess vegna mun heppilegast fyrir hann að stinga þessu úrelta vopni niður í jörðina og láta það ryðga þar. — Ég mun ekki lengja mál mitt meira, því að þessu máli þarf að hraða hið mesta, en ég vil undirstrika það, að Alþ. ber nú að gera tvennt. Í fyrsta lagi að afgreiða kjördæmamálið og í öðru lagi að afstýra voða í sambandi við verðbólgu og afstýra íhlutun erlends valds hér. Þetta á að samrýmast og getur það vel, enda þótt það sé ekki skoðun framsóknarmanna, sem sitja á þingi til þess að blekkja og svíkja. Við þurfum ekki að skammast okkar fyrir okkar málstað, þegar við göngum til kosninga, en hv. þm. V.-Sk. ætti að endurskoða sína afstöðu, því að það mun honum fyrir beztu.

Ég vil svo að lokum segja hv. þm. V.-Sk. það, að stundum er það nýi tíminn, sem getur kennt þeim eldri og leitt þá af refilstigum, og í hvert skipti, sem þessi hv. þm. gefur mér tíma í hegðun, mun ég gefa honum tíu tíma í því, hvernig honum og hans flokki beri að hegða sér, því að þess gerist full þörf.