14.08.1942
Neðri deild: 7. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 124 í B-deild Alþingistíðinda. (251)

1. mál, stjórnarskipunarlög

Eysteinn Jónsson:

Ég hafði nú eiginlega ekki ætlað að taka til máls við þessa umr. Framsfl. hefur óskað eftir, að útvarpað yrði 3. umr. þessa máls, og mun ég þá ræða það rækilegar til viðbótar því, sem ég nú segi. Ég hef hins vegar orðið þess var nú, að fylgismönnum þessa máls virðist áhugamál, að sem mestar umr. fari fram, og ræð ég það af því, að þeir hafa gert árásir á Framsfl., sem fordæmalausar eru hér á þingi. Það er þó helzt til að bíta höfuðið af skömminni, er hv. 4. landsk. er hér að tala um stráksskap framsóknarmanna, því að ræða hans er einhver sú óþrifalegasta, er ég hef heyrt í þingsölunum. Hann kom með gífurlegar fullyrðingar og brigzlaði heilum þingflokki um landráð, án þess að færa hin minnstu rök fyrir svo stórkostlegri ásökun. Það vægasta, sem hægt er að segja um ræðu hans, er vera mun hin svo kallaða jómfrúræða, er, að hún var honum sjálfum til skammar, hv. Alþ. til skammar og kjósendum hans til skammar. Það er mín skoðun, að hv. þm. ættu sem minnst að viðhafa þvílík brigzlyrði, það er ósæmandi og brýtur niður siðferði þjóðarinnar, ef hv. Alþ. gefur þess háttar fordæmi. Ef menn þurfa hér að segja jafnstórkostlegar fullyrðingar, af því að þeir telji þær sannleika, þá verða þær vitanlega að vera fullkomlega rökstuddar. En ég veit með vissu, að sjálfur trúir hann ekki því, sem hann sagði, og hann meinar það ekki. Því ósæmilegra er að láta sér það um munn fara.

Ýmsir fylgjendur stjórnarskrármálsins og þá einkum sósíalistar hafa látið í ljós, að Framsfl. hafi í hyggju að nota sér núverandi neyðarástand þjóðarinnar til þess að komast til valda með stuðningi erlends hervalds. Upplausnin í þjóðfélaginu er að vísu öllum ljós. En hún stafar einmitt frá ýmsum pólitískum flokkum, er hafa ýtt undir hana, og þá einkum þeim, er börðust á móti gerðardómslögunum. Nú beini ég því til þessara manna, af því að þeir vilja sjálfsagt ekki erlenda íhlutun, að e. t. v. eru það þeir einir, sem geta ráðið við, hvort þessi vitleysa verður að þjóðarvoða, sem þeir hafa komið af stað. Ég get ekki skilið tal þessara manna öðruvísi en að þeir séu nú farnir að sjá, að til þjóðarvoða stefnir sem afleiðing af þeirra eigin gerðum, og ætli þeir nú að koma sökinni af sér á aðra.

Nei, við eigum að hætta að metast hér. Við skulum vel athuga, að hér getur skapazt það ástand, að erlend íhlutun komi til greina, og það er skylda okkar allra að vinna gegn því. Vil ég einkum beina þessum orðum mínum til sósíalista, því að það mun mikið undir þeim komið, hvernig fer.

Hv. 1. landsk. þm. var hér áðan að tala um hv. þm. Str. og Mússólíni og fleiri erlenda stjórnmálamenn og var með sérstakar dylgjur í garð hv. þm. Str. um það, að pólitík hans minnti sig á aðferðir Mússólínis til þess að brjótast til valda eftir að hafa skapað glundroða og veika stjórn í landinu. En hverjir eru það, sem hér hafa lagt það í vana sinn að styðja fremur veika stj. en sterka og hafa hrósað sér af því að stofna til stjórnleysis og rekið þessa stefnu opinbert, skapað glundroða sér til flokkslegs framdráttar eins og Mússólini? Það eru einmitt kommúnistar. Og þó gera þeir sér leik að því að draga þetta inn í umr., en hafa ekki sómatilfinningu til þess að þegja hér um.

Hv. 1. landsk. sagði, að ekki mætti gleyma þeim, er settu gerðardómsl., því að þau væru upphaf alls ills. Ég vil þá segja honum það, sem hann þó veit, að þessi l. voru sett af því, að pólitískir loddarar komu því til leiðar, að íslenzkir verkamenn tóku ekki þátt í baráttunni gegn dýrtíðinni.

Ábyrgu flokkarnir höfðu viljað stuðla að því á frjálsum vettvangi að jafna kaupdeilur, og því tóku þá ekki sósíalistar í hina framréttu hönd um þessi mál, til þess að ekki þyrfti að grípa til þvingunarlaga? Þvert á móti hvöttu þeir verkamenn til þess að semja ekki og knúðu á þann hátt fram þvinganir sér til pólitísks framdráttar. Þessar aðferðir heppnuðust furðanlega vel vegna aumingjaskapar Sjálfstfl. Nú kenna þeir svo öðrum um allt, þessir menn, er aldrei vildu jákvæða lausn málanna. Og nú vil ég segja við þá að lokum: Hér hafið þið ástandið eins og þið vilduð og stofnuðuð til. Og hvert ættið þið svo að leiða þá öldu, er þið hafið vakið, en ætlið nú að kenna öðrum, ef þetta kynni að verða að slysi?

Þá barst inn í umr. afstaða þessa flokks til erlendra ríkja. Ég vil nú sýna fram á, hversu hlálegar afsakanir hv. 1. landsk. voru, eins og hv. þm. V.-Sk. tók einnig fram. Fyrst framan af styrjöldinni virtist þessum flokki nákvæmlega sama um, hvor aðilinn sigraði, og gerði hann enska setuliðinu alla þá bölvun hér, sem hann gat, svo að lá við almennri hættu vegna erlendrar íhlutunar hér. Nú segir hv. 1. landsk. þetta ofur auðskilið, því að þá hafi farið með stj. í Englandi afar afturhaldssöm stj., sem eiginlega hafi verið fasistisk. Þetta er algerlega rangt. Þá sat við völd sama stj. með sömu stefnu og nú. Því að það var ekki með stjórn Churchills að þessi flokkur uppgötvaði, að England væri lýðræðisríki, heldur á þeirri stundu, er þjóðverjar réðust á Rússa. Þeirra sjónarmið var rússneskt sjónarmið.

Nú eins og stendur veit eiginlega enginn, á hvaða götu þessi flokkur er staddur, því að í nýafstöðnum kosningum hefur hann sungið áberandi tvísöng, sem enginn getur botnað í. Annars vegar hefur hann reynt að halda gömlu kommúnistunum við með rússnesku línunni, en hins vegar er sú lína fyrir aðra kjósendur, er glæpzt hafa í flokkinn, að hann sé almennur, róttækur umbótaflokkur í þessu lélega auðvaldsþjóðfélagi. Á þessum vígorðum hefur hann fiskað talsvert í síðustu kosningum, og er nú fróðlegt að vita, hvað þessi flokkur ættar að gera, þjóna Rússum eða fylgja hinni stefnunni. Þessi tvísöngur hefur verið mjög áberandi, svo að mér er ómögulegt að vita, hvers konar fólk það er, sem situr úti á enda þessa bekks.

Það hefur lítið verið minnzt hér á sjálft kjördæmamálið, og er það raunar ekki óeðlilegt, þar eð ekki er um annað að gera en hafna því eða samþykkja það óbreytt. Ég hafði gaman af hv. 4. landsk., er hann sagði um þetta mál, að óeðlilegt væri að stöðva það nú og kvað við liggja andúð fólks í landinu, einkum í kaupstöðum og alveg sérstaklega í Rvík. Við, sem undanfarið höfum verið á framboðsfundum víðs vegar úti um sveitirnar, höfum því meiri skemmtun af þessum ummælum, sem við minnumst þess, að þá átti þetta sérstaklega að vera réttlætismál sveitanna og fyrir þær gert. Það er einstaka sinnum, að þessir menn kasta óviljandi grímunni og gleyma að flytja þær blekkingar, sem þeim eru upp á lagðar fyrir kosningar. Undarlegast er þó, ef flokkur þessa hv. þm. þarf að fyllast reiði, ef kjördæmamálið væri nú stöðvað, þegar þess er gætt, að frambjóðendur flokksins sögðu fyrir kosningar, að ekki væri kosið um þetta mál, heldur um, nýja þjóðstjórn og þvílíkt.

Þessi málflutningur dæmir sig alveg sjálfur. Hann er hreinn skrípaleikur. Hið sama er í sjálfu sér að segja um hina flokkana. Þó vita þeir mjög vel, að flestir kjósendur þeirra kusu þá nú, þrátt fyrir kjördæmamálið, svo langt var frá því, að þeir kysu þá vegna þess. Og svo er þetta útfært gersamlega öfugt, látið í veðri vaka, að það sé kjósendaviljinn, sem ýti á í þessu máli. Þó vita hv. þdm., að enda þótt almennur vilji sé á að endurskoða kjördæmaskipunina, þá vilja þeir sömu velja til þess annan og betri tíma en nú. Hefði, eins og hv. þm. V.-Sk. tók fram, verið látin fara fram hlutlaus þjóðaratkvæðagreiðsla um flutning þessa máls nú, þá hefði vissulega meiri hl. þjóðarinnar sýnt sig andvígan því, að málið yrði tekið upp á þessum tímum. Það eru aðeins flokksstjórnir, sem vilja þetta, það er af flokkshlýðni einni, að kjósendur þessara flokka hafa léð málinu fylgi sitt að nafninu til.

Þá detta mér sérstaklega í hug ummæli hv. þm. V.-Ísf., er hann sagði, að þing, rétt fyrir kosningar, væri ekkert veikara þing en venjulega. Reyndi Alþfl. einmitt ekki að skapa upplausn vegna væntanlegra kosninga, og afstaða hans hefði orðið allt önnur, ef kosningar hefðu ekki staðið fyrir dyrum. Alþfl. tók upp þetta mál til þess að gera Sjálfstfl. óleik í kosningunum. Það var tvennt, er hann setti sér sem markmið eftir áramótin, afnám gerðardómsl. og að reka fleig í stjórnarsamvinnuna. Það er játað, að kjördæmamálið var borið fram sem pólitískt hrekkjabragð. Og svo getur hv. þm. V.-Ísf. barið sér á brjóst og undrazt yfir því, að menn skuli láta sér detta í hug, að öðruvísi sé unnið í þinginu fyrir kosningar en endranær.

Að lokum vil ég svo geta um bréf það, sem Framsfl. hefur nú ritað hinum þingflokkunum, og afstöðu flokksins í því máli. Tilraunir hafa verið gerðar til þess í umr. að gera Framsfl. sérstaklega tortryggilegan fyrir þd starfshætti, sem honum eru bornir á brýn. Það hefur t. d. verið orðað svo af mörgum hv. þm., að Framsfl. vilji alls ekki taka þátt í að leysa vandamál þjóðarinnar, nema hann fái það vel borgað, — já, borgað, segja þessir hv. þm. og láta fylgja viðeigandi aths. um innræti flokksins. Tilefnið er að Framsfl. hefur ritað hinum flokkunum og bent á þá staðreynd, að verði þetta frv. samþ. og kosningar látnar fara fram í haust, er ekki hægt að koma samtökum á um stjórn landsins. Þessi einföldu sannindi, sem reynslan sýnist þegar staðfesta, svíður þessum flokkum svo ákaflega, að þeir þykjast aldrei geta svívirt Framsfl. nóg fyrir að segja þau. Framsfl. hefur ekki sagt það eitt, að hann geti ekki tekið þátt í ríkisstj., ef þannig er stefnt, heldur einnig hitt, að hann er reiðubúinn, hvenær sem er, til samvinnu um að reyna að afstýra upplausninni, sem óðum grípur um sig. Svarið við því er það hjá stuðningsflokkum þessa máls, að Framsfl. sé þjóðhættulegur ofstopaflokkur, og tilgangur málsins þess vegna helgaður með því, að þann flokk þurfi að „setja á sinn stað“. Hvernig stendur þá á því, að það skuli ekki gleðja þá, að þessi hættulegi ofstopaflokkur, þessi landráðaflokkur, skuli ófáanlegur til þátttöku í landsstjórn á grundvelli núverandi upplausnar? Hvaða stuðnings gætu þeir vænzt af ofstopaflokknum, sem þeir segja, að öll upplausnin sé að kenna? — En hvernig stendur á því, að þeir skuli hýða sjálfa sig svo að segja, að öll upplausnin sé því að kenna, að Framsfl. var í stjórn og barðist gegn upplausninni og vill ekki vera í stjórn, sem skorta mundi grundvöllinn til að reisa við henni skorður? Það eru þeir, sem völdu stefnuna, og þeirra að bera á því ábyrgðina, meðan stefnunni er haldið. Og hvernig stendur á, að þeir skuli þá ekki geta staðið saman um stjórn landsins?

Hv. 4. landsk. (AkJ) talaði um Framsfl. sem skipulagða bófaklíku. Þeir, sem þar ættu heima, væru vonlausir um alla framtíð nema vera í stj., og þó opinberuðu þessir bófar landráðainnræti sitt með því að neita að vera í stj., og yfir því háttalagi fáraðist hann, allra mest, þegar leið á ræðuna. En þessi málsfærsla hefur bókstaflega verið ein og sama hjá fulltrúum allra flokka, sem að frv. standa, þótt að vísu hafi ekki verið með sömu óviðurkvæmilegu orðunum. Efnið hafa þeir tuggið hver eftir öðrum.

Ég held, að skýringin sé ekki nema ein á allri þessari ósamkvæmni og taugaóstyrk þm. í þessum flokkum og mjög einföld: Þeir eru hræddir við afleiðingar þess, sem þeir hafa tekið sér fyrir hendur. Þeir sjá ákaflega vel, að þeirra starfsaðferðir falla ekki þjóðinni í geð, og þeir ráða ekki við, hve langt sú upplausn gengur, sem þeir hafa komið af stað. Þessir þm. eru ekki alveg eins glaðir og þeir voru, þegar þeir hrósuðu sér af því á síðasta þingi, að fyrir utan þetta frv. kæmu þeir sér ekki saman um neitt. Hvers vegna eru þeir ekki glaðir yfir að eiga nú að mynda stj., sem kemur sér ekki saman um neitt? — Mikið var, að þeir skyldu annars koma auga á, að það þarf að standa saman um málin. En reynslan á eftir að sýna, hvernig þeim tekst að valda þeim verkefnum, sem þeir eru að byrja að sjá, að leysa þarf. Þeir þola ekki, að Framsfl. beini til þeirra, að þeir hafi neinar skyldur aðrar em taka nú aftur upp kjördæmamálið og láta meðferð þess valda þeirri eyðileggingu í öðrum efnum, sem verkast vill.

Ég taldi rétt að bæta þessum orðum við það, sem hv. frsm. minni hl. sagði, vegna þess, hvernig aðrir hv. þm. hafa hagað orðum sínum, en get að öðru leyti geymt aths. um málið til 3. umr.