14.08.1942
Neðri deild: 7. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 128 í B-deild Alþingistíðinda. (252)

1. mál, stjórnarskipunarlög

Áki Jakobsson:

Ég tel mig ekki þurfa að svara neinu sérstöku, sem fram var borið gegn ræðum mínum, því að ég fer ekki að andmæla útúrsnúningum og hálfgerðum þvættingi, en aðalatriðinu í ræðunni, sem ekki snerti rússnesk, heldur íslenzk mál, var alls eigi svarað. Undan því kemst Framsfl. ekki. Sá flokkur sýnir sig nú í því að vilja tefja umr. um málið, og kýs ég þá að lengja þær ekki.