18.08.1942
Neðri deild: 8. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 152 í B-deild Alþingistíðinda. (267)

1. mál, stjórnarskipunarlög

Ásgeir Ásgeirsson:

Í raun og veru eru útvarpsumr. um þetta stjórnarskrármál alveg óþarfar. Þetta mál hefur þegar fengið fulla afgreiðsla með þeim kosningum, sem fram fóru í vor, þegar málið var lagt fyrir þjóðina. Þessu máli var því til lykta leitt með þeim kosningum, því að það er þjóðin sjálf, sem hefur úrslitavaldið, og hún fellir eða samþ. þau mál, sem lögð eru undir úrskurð hennar.

Framsóknarmenn hafa haldið því fram í blöðum sínum undanfarið, að fylgismenn kjördæmamálsins vildu láta rúmlega 1/3 hluta atkvæða ráða úrslitum í tvímenningskjördæmunum, og telja það hróplegt ranglæti, en þeim finnst það hins vegar réttmætt, að þegar 41 þús. kjósendur greiða atkv. með kjördæmabreyt., en aðeins 16 þús. á móti, þá ráði minni hl. Það er samkv. þeirra skoðun þjóðarvilji.

Í bréfi því, sem Framsfl. skrifaði hinum flokkunum, er hann bauð til samstarfs, ef engar kosningar yrðu látnar fara fram, er því haldið fram, að allt sé að komast í upplausn innan lands og að nýjar hættur steðji að okkur utan frá. Ég held nú, að ófriðurinn gangi sinn gang og að það verði alveg jafnmörg skip skotin niður á Atlantshafi, hvort sem kosningar fara fram hér hjá okkur eða ekki, og ég hef ekki trú á, að landið verði fremur tekið, þótt kosningar séu. En ef nú allt er komið í þessa upplausn innan lands, sem framsóknarmenn vilja vera láta, og þeir einir eru færir um að bjarga þjóðinni, því sýna þeir þá ekki ættjarðarást sína skilyrðislaust og vinna björgunarstarfið? Nei, þeir setja það skilyrði, að ef engin stjórnarskrárbreyt. verði samþ. og engar kosningar fari fram, þá skuli þeir taka þátt í að stöðva upplausnina, og þeir bjóða upp á frið og samstarf með öllum flokkum þingsins, ef hætt sé við þetta mál, sem í rauninni er algerlega útkljáð.

Þrátt fyrir það, sem Eysteinn Jónsson sagði um frið, held ég, að flestum hafi þótt vera heldur ófriðsamlegur tónn í ræðu hans, og mætti víst segja eitthvað líkt um þá framsóknarmenn og Hvamm-Sturla sagði á sínum tíma, er kona stakk hann með hníf í kinnina á hlaðinu í Reykholti, að með ýmsu móti birtast ástir kvenna.

Kosningarnar í vor stóðu fyrst og fremst um kjördæmamálið, og þótt sagt sé eftir á, að kosið hafi verið um önnur mál, veit ég ekki um aðrar kosningar, sem meira hafa fyrst og fremst snúizt um eitt mál, og það hafa allir gengið út frá því, að eftir stutt þing færu fram kosningar eftir hinum nýju lögum.

Framsfl. hefur ekki alltaf verið svona hræddur við kosningar, þó að hann telji kosningar nú hættulegar þjóðinni, því að í staðinn fyrir kosningarnar í vor vildi hann hafa almennar kosningar með þeim hætti, sem haustkosningarnar eign að vera. Þá átti kosningabaráttan að vera stutt og friðsamleg. Ég skil ekki í, að þetta ætti að draga úr því hugarfari framsóknarmanna að hafa kosningarnar friðsamlegar.

Þessu máli á að geta verið lokið á tveimur mánuðum, og þm. eru í þessa tvo mánuði jafnt bundnir skyldum sínum og á venjulegum tímum, og stjskrl. hindra ekki, að þeir geti sinnt þessari skyldu sinni. Skilyrðin eru þau sömu og á venjulegum tímum, nema ef það er ekki hægt að vinna á sama hátt, þegar skammt er til kosninga og þarf að tala við kjósendur aftur, eins og þegar kosningar eru nýafstaðnar. Ég hygg, að ef menn treysta sér til að vinna friðsamlega saman eftir kosningar, ættu kjósendur að heimta, að menn sýndu það fyrir kosningar.

Það er rétt, að ástandið er alvarlegt, en það var það líka í vor, þegar gengið var til kosninga, og það hefur það verið í 3 ár, og skal ég ekki segja, hvort það er alvarlegra nú en það hefur verið á þessu þriggja ára tímabili, enda er hér um hluti að ræða, sem ekki er gott að tala um opinberlega.

Kosningafrestunin gafst illa. Hún var reynd, og árangurinn varð sá, að strax var fitjað upp á málum, sem skirrzt hafði verið við að fitja upp á, þegar kosningar stóðu fyrir dyrum. Þá var farið að reyna að vinna á móti því, að stríðsgróðinn dreifðist. Þá var farið að tala um sérstakan launaskatt, sem ekki átti að koma á aðra en þá fastlaunuðu. Þá var farið að tala um skatta, sem leiddu til samstarfs Sjálfstfl. og Framsfl. um síðustu áramót. Það er almenn skoðun, að ekki sé leggjandi út í það að fresta kosningum aftur. Kosningafrestunin gafst illa, og það er ekki hægt að forðast aðrar hættur með því að fresta kosningum, því að kosningafrestunin sjálf er hættuleg.

Það er talað um upplausn og ófriðarhættu í þessu sambandi. En vilja menn athuga það, að það, sem talað er um sem aðalupplausnina, sem sé kaupbaráttan, að því leyti, sem hún er ekki af eðlilegum ástæðum, á rætur sínar í sjálfum gerðardóminum, sem nú er verið að afnema. Það er stofnun hans, sem var upphafið að þessari sérstöku tegund af upplausn. Það var ekki hægt að framkvæma hann nema með aðferðum, sem íslenzkir stjórnmálamann hafa skirrzt við að beita, og enda vafasamt, að það hefði verið hægt nema með erlendri aðstoð. Gerðardómurinn tók ekkert tillit til þess, að stríðsgróðinn hefur flætt yfir landið og eftirspurnin eftir vinnu er meiri en hún hefur nokkurn tíma verið. Á þessum sama tíma hefur, fyrir forgöngu ríkisstj. og allra flokka, verið óskað eftir hærra fiskverði, sem kauphækkun til sjómanna, og það skilja allir, að er sú hækkun kemur fram, verður líka að borga landfólkinu meira. Og svo er sá einfaldi sannleikur, að fólkið lætur ekki segja sér það, að ekki sé hægt að dreifa stríðsgróðanum. Það er sams konar og þegar menn sameinast í kaupfélög til þess að dreifa gróða kaupmannanna og þegar talað er um hlutaskipti og sannvirði vinnunnar. Þeir, sem þekkja þessi hugtök, láta ekki segja sér, að ekki sé hægt að dreifa stríðsgróðanum.

Svo er annað atriði, og það er það, að til þess að fólkið vinni vel og til þess að félagsskapur verkalýðsins og samtök hans njóti sín, þarf fólkið að semja sjálft, og það þarf að sýna því þann sóma að tala við það.

Þá er það einn aðili, sem þingið á að tala við mína, en það eru starfsmenn ríkisins, og það er algerlega óhjákvæmilegt annað en að bæta kjör þeirra nú þegar.

Það hefur ekki verið gert annað en fara eftir krókaleiðum til þess að fara kringum þessi lög, sem öllu áttu að bjarga. Þetta er upplausn, vegna þess að það gætir ekki þeirrar ábyrgðar og þess þroska, sem maður gæti búizt við að finna hjá þeim, sem vilja koma á einhverjum friði. Nú standa yfir samningar í Reykjavík milli atvinnurekenda og stjórnar verkalýðsfélaganna, og taka þátt í þeim samningum 3 fulltrúar frá þremur flokkum þingsins, en ég sakna þar 4. mannsins frá 4. flokknum, því að ég bjóst við, að sá flokkur mundi vilja vera með og sýna friðarvilja sinn. En það kann vel að vera, að ekki sé hægt að vinna að slíkum samningum, nema þriðjungur þjóðfélagsins gefi eftir sinn rétt til þess að tvöfalda rétt annarra manna. Ég býst við, að þessir samningar væru þeir sömu, hvort sem kosningafrestun yrði eða ekki, því að samningarnir eru milli aðila með aðstoð þeirra flokka, sem vildu koma á því réttlæti, sem gerðardómurinn leyfði ekki, að komið væri á.

Ófriðurinn er mikið notaður til þess að hafa áhrif á landsfólkið, og vissulega kvíðum við þeim áhrifum, sem ófriðurinn hefur á landið. En við vitum, hver áhrif ófriðurinn hefur á viðhorf þeirra þjóða, sem næstar okkur eru, og vegna þess getur okkur virzt, að á slíkum hættutímum eigum við ekki að láta neinum haldast uppi að sýna ranglæti, hvort heldur er í mannréttindamálum eða í kaupkröfumálum. Það er bezt, að við höldum skýrri hugsun og reynum að dæma skynsamlega um það, sem fyrir augun ber, og ekki efast ég um, að við munum standa saman gagnvart utan að komandi hættum og gera saman það, sem í okkar valdi stendur til þess að mæta þeim og afstýra. Ég vil segja, að það sjáist fyrst, að við séum jafnir, þegar við horfumst í augu við hætturnar. Það er eitt einkenni hættunnar, að hún gerir menn jafna, og það væri dálítið nýstárlegt, ef hættan væri notuð til þess að halda við ójöfnuði. Kjördæmamálið á á engan hátt að standa í vegi fyrir samstarfi. Kosningarnar, sem standa fyrir dyrum, eru ákveðnar af þjóðinni sjálfri. Vandamálið er ekki það að kveða niður kosningar í haust. Það er ekki sá vandi, sem þjóðin þarf að leysa. Það er hægt nú þegar að efna til alls þess samstarfs, sem þarf, gegn yfirvofandi hættum, og ég vil segja, að það er að safna glóðum elds að höfði sér að vilja slíta þessu þingi án þess að vilja eiga þátt í að leysa þau mál, sem ekki geta beðið óleyst í þessa tvo mánuði. Það er á margan hátt vel til fallið að skapa samstarf fyrir kosningar, sem þjóðin gæti dæmt um. En það er ekki líklegt til samstarfs, þegar sagt er: Það er sama, hvernig hættan steðjar að; við göngum ekki til samstarfs nema með vissum skilyrðum.

Þessir tímar eru miklir baráttutímar, og undangengin 3 ár hafa leitt af sér breyttar aðstæður hjá okkur, en hart finnst mér það, ef stjórnarstefna Framsfl. í þessi 3 stríðsár hefur ekki markað meiri spor en það, að hægt sé að rífa hana niður á þremur mánuðum. Eitthvað hygg ég þá, að hafi verið látið undir höfuð leggjast til þess að búa vel í haginn fyrir þjóðina. Hitt veit ég líka, að það hefur verið lítið um brbl. í þessa 3 mánuði.

Það eru mikið breyttir tímar, og hagur manna hefur tekið mjög miklum breytingum. Því er það nauðsynlegt, að þjóðin hugsi um hinar breyttu aðstæður og þau ráð, sem eru tekin til þess að leysa úr vandanum, og þá er bezt, að kjósendur fái að dæma sjálfir.

Það, sem hefur gerzt á árinu, er það, að atkvæðisrétturinn hefur verið jafnaður og menn fá nú að semja sjálfir um laun sín, en þetta er hvort tveggja jöfnuður, sem ekki hefur áður verið. Framsfl. hefur í þessum málum, sem nú er lögð áherzla á, beitt sér á móti dreifingu auðsins, þar sem er kaupbindingin, og dreifingu valdanna, þar sem er kjördæmabreyt., en það er einmitt á tímum sem þessum, sem verða stærstu breyt. til jafnaðar og sem ríkust ástæða er til að berjast fyrir jöfnuði, því að annars væri ójöfnuðurinn allt of mikill, og þegar skorað er sérstaklega á þá menn í tvímenningskjördæmunum, sem ekki vilja láta 1/3 hluta ráða 2 mönnum, mun þjóðin hugsa sem svo, að hún vilji ekki, að 13 hluti ráði á þingi.

Þetta kjördæmamál var útkljáð í síðustu kosningum, og það er líka útkljáð, að aðrar kosningar fara fram, og sökina á því, að ekkert samstarf getur orðið, eiga þeir, sem setja skilyrði, sem fyrir fram er vitað, að ekki er hægt að ganga að.