19.08.1942
Neðri deild: 9. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 162 í B-deild Alþingistíðinda. (270)
1. mál, stjórnarskipunarlög
Forseti (EmJ) :
Þetta er síðara kvöldið, sem útvarpsumr. fer fram nú, og eru ákveðnar tvær umferðir fyrir flokkana í kvöld. Í þeirri fyrri fær hver flokkur 20 mínútur til umráða, en í hinni síðari 10 mínútur. Röð flokkanna er í kvöld þannig, að fyrstur er Sjálfstfl., þá Framsfl., þriðji í röðinni er Alþfl. og að lokum Sameiningarfl. alþýðu, sósíalistafl.
Þá hefst umr., og tekur fyrstur til máls, af hálfu Sjálfstfl., hv. 11. landsk. þm., Gunnar Thoroddsen.