19.08.1942
Neðri deild: 9. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 184 í B-deild Alþingistíðinda. (279)

1. mál, stjórnarskipunarlög

Forsrh. (Ólafur Thors) :

Herra forseti! Ég get að sjálfsögðu ekki á þeim fáu mínútum, sem ég hef til umráða, vikið nema að örlitlu leyti að ummælum þeim, sem fallið hafa hér í garð Sjálfstfl. Ég mun beina skeytum mínum að þeim flokki, sem stofnað hefur til úlfúðar gegn Sjálfstfl. í þessu máli. Það er ekki oft, að við hv. þm. V.-Sk. (SvbH) og ég erum sammála. Nú er undantekning frá því. Það mátti glögglega greina, hvernig honum hefur sviðið undan ræðum þeirra hv. þm. A.-Húnv. (JPálm) og hv. 11. landsk. þm. (GTh). Þetta er játning þessa manns um það, að téðir flokksbræður mínir hafa sorfið fast að Framsfl., enda eru ræður beggja rómaðar.

Hv. þm. V.-Sk. bar það á hv. þm. A.-Húnv., að í tveimur greinum hefði hann farið með ósannindi. Báðar þessar staðhæfingar hv. þm. V.-Sk. eru með öllu rangar. Það er rétt, sem hv. þm. A.-Húnv. sagði, að í umr. í Sþ. um síldarmjölsverðið bar ríkisstj. fram, að verð síldarmjölsins væri haft 20.00 kr. lægra heldur en það er á erlendum markaði, og þá lét hv. þm. Str. (HermJ), fyrrv. forsrh., sér fátt um finnast og kallaði það mjög ómerkilegt mál, sem tæplega tæki að ræða á Alþ. En þó að ég léti undir höfuð leggjast að minnast á það þá, er það satt, sem hv. þm. A.-Húnv. sagði varðandi afstöðu Sjálfstfl. í þessu máli. Í fyrra lét þessi hv. þm. síldarmjölsverið til bænda fara úr 32 kr. upp í 43 kr. pokann, og þá var þó miklu lægra verð á vinnuaflinu og afurðunum heldur en nú er. En þetta er venjulegt, að ef við sjálfstæðismenn minnumst á hagsmunamál bænda, þá rýkur þessi hv. þm. (SvbH) upp á nef sér, eins og enginn megi koma nálægt málum bænda nema hann. En hann verður að sætta sig við það, hvort sem honum líkar betur eða verr, að við sjálfstæðismenn berum hag bænda fyrir brjósti.

Hitt atriðið, sem hv. þm. A.-Húnv. talaði um, er líka rétt. Ég fór fram á það við Kristján Kristjónsson, að hann tæki sæti í sáttanefnd af hálfu Framsfl. Hann skrifaði mér bréf og vísaði til flokks síns. Ég skrifaði þá tafarlaust form. Framsfl. bréf þessa efnis, en við því hefur ekkert svar fengizt. Þetta gerðist í gær. Það er því allt rétt, sem hv. þm. A.-Húnv. hefur sagt í þessu efni, og þessi þm. Framsfl. hefur orðið ber að ósannindum í þessu, og hefur flokkurinn þar uppskorið eins og hann hefur niður sáð. Hlutur hans er eins og efni standa til. [Niðurlag ræðunnar vantar frá innanþingsskrifara.]