19.08.1942
Neðri deild: 9. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 184 í B-deild Alþingistíðinda. (280)
1. mál, stjórnarskipunarlög
Sveinbjörn Högnason:
Herra forseti! Góðir áheyrendur! Mér þykir vænt um að hafa áorkað því, að hæstv. forsrh. kæmi fram og sannaði þjóðinni, að hann væri ekki alveg sofnaður á verðinum. En það munu menn hafa haldið, að væri, ekki sízt hér í hv. d., þar sem ekkert hefur heyrzt í honum um þetta mál.
Hæstv. ráðh. sagði, að það væri leiðinleg ómenning að viðhafa illt orðbragð. En hvernig var hans eigið orðbragð? Er hægt að fella harðari dóm um sjálfan sig en hæstv. ráðh. gerði um leið og hann nefndi rosta, ofsa, sérréttindaklíku, eigin hagsmuni? Hverjum dettur ekki hann í hug, þegar þessi orð eru nefnd? Er til meiri sérréttindaklíka en Kveldúlfur eða meiri rosti og ofsi en ráðh. beitir, þegar hann er að verja eigin hagsmuni þeirrar klíku?
Hæstv. ráðh. spurði og vildi að ég svaraði því, með hvaða valdi hefði átt að halda uppi gerðardómsl., lögregluvaldi eða íhlutun erlends hervalds. Þekkir hann engin önnur úrræði til bjargar? Ég hefði haldið, að fyrsta skylda hans væri að beita skynsamlegum úrræðum, en það hefur hann svíkizt um að gera. Það þurfti t. d. að hafa fullt vald á innflutningnum og því, hvernig opinberum framkvæmdum væri hagað, og það þurfti að koma í veg fyrir, að mikill hluti þess vinnuafls, sem fyrir hendi er, færi í ónytsöm störf.
Ég held, að það sé ekki fleira, sem máli skiptir, sem ég þarf að svara hæstv. ráðh., en vil svara hv. 11. landsk. þm. nokkrum orðum. Hann sagði, að Framsfl. hefði viljað fjölga þm. í Rvík upp í 8, en hann gleymdi að geta þess, að Framsfl. vildi þá, að uppbótarþingsætin 11 yrðu afnumin, enda eru þau hin mesta meináta, sem við búum við í þessum efnum. Það veit hver maður, að þessir 11 þm. lenda mest á mesta fólksfjöldanum.
Hv. 4. þm. Reykv. var að tala um, að það þyrfti að taka stríðsgróðann úr umferð, en hann gætir þess ekki, að skattarnir samkv. till. Framsfl. voru miklu hærri en eftir till. Alþfl. 1941. Það er líka skrítið að heyra þennan hv. þm. hrópa um ranglæti, ef ekki verði grunnkaupshækkun, sama manninn, sem sagði í vor, að til slíks kæmi ekki, enda væri enginn áhugi fyrir því.
Umr. þessar hafa verið lærdómsríkar, því að þær hafa leitt í ljós, að allt er að ske, sem við framsóknarmenn sögðum fyrir. Hv. þm. V.-Ísf. lýsti þessu réttilega í gær, þegar hann sagði, að sagt væri, að þriggja mánaða stjórn Sjálfstfl. hefði tekizt að gera að engu þriggja ára staaf Framsfl. Hv. þm. meinti, að ekki hefði það starf verið mikið, úr því að svo vel hefði tekizt að rífa það niður. En þar skjátlaðist hv. þm., enda veit hann það eins og við öll, að það tekur lengri tíma að byggja upp en að rífa niður. Eyðingaröflin eru stórvirk. Sprengjur hv. þm. V.-Ísf. og flokksmanna hans hafa verkað í bili, og óhappamenn munu þeir verða kallaðir. Hitt er ósennilegt, að þær sprengjur hafi áhrif til frambúðar, þegar fólkinu lærist að varast þær. Það var verið að reyna á varnarstyrk sveitanna, áður en lokaárásin yrði gerð. Það er auðsætt, að hugsað er til áframhaldandi sóknar, og hvar eru nú yfirlýsingar Sjálfstfl. og Alþfl. frá því þegar þjóðstj. var mynduð 1939? Þá sagði núv. forsrh., að það þyrfti að fórna öllum flokkshagsmunum. Eru þessir menn ekki hættulegir þjóðinni, sem enn krefjast kosninga, eingöngu vegna flokkshagsmuna? Framsfl. mun aldrei hræðast það að leggja mál sitt fyrir kjósendur. En baráttan á að hætta og starfið að hefjast. Þetta er krafa Framsfl. og allra hugsandi og gætinna manna á Íslandi nú.