04.08.1942
Sameinað þing: 1. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í B-deild Alþingistíðinda. (29)

Kosning til efri deildar

Forseti (GSv) :

Óskað hefur verið forsetaúrskurðar um kosningu þá til efri deildar, sem nú hefður farið fram í sameinuðu þingi. Vitnað hefur verið til 6. gr. þingskapa og það staðhæft, að sjöundi maður á fram komnum A-lista nái kosningu, en listinn hafði hlotið 19 atkvæði af viðstöddum 48 þingmönnum, og hafði verið borinn fram af flokki, sem ella ætti 20 atkvæði á þingi (1 fjarverandi), en ekki hafi náð kosningu 6. maður á C-lista, sem hlaut 17 atkv. og borinn fram af 17 manna þingflokki.

Á fram komnum 4 listum voru samtals nöfn 17 þingmanna, en kjósa ber til efri deildar aðtins 16 þingmenn, og var því látin fara fram atkvæðagreiðsla, er féll þannig :

A-listi (Framafl.) hlaut 19 atkv.,

B-listi (Alþfl.) hlaut 6 atkv.,

C-listi (Sjálfstfl.) hlaut 17 atkv.,

D-listi (Sósfl.) hlaut 6 atkv.,

sem samkv. hlutfallsreglu 48. gr. þingskapa var reiknað þannig:

A-listi fær 6 menn,

B-listi fær 2 menn,

C-listi fær 6 menn,

D-listi fær 2 menn,

og hlaut 6. maður C-listans hærri hlutfallstölu, eða 25/6, heldur en 7 maður A-listans, er hafði hlutfallstölu 25/7.

Samkvæmt orðréttum fyrirmælum 6. gr. þingskapa „skal hverjum þingflokki skylt að tilnefna á lista þá tölu þingmanna sinna, er honum ber, í hlutfalli við atkvæðamagn hans í sameinuðu þingi.“ En eins og getið var, ber að velja til efri deildar 16/49 hluta þingmannatölu, og samkvæmt tölu þingmanna flokkanna eru nákvæmar hlutfallstölur þeirra þannig:

Alþýðuflokksins 1 47/49,

Framsóknarflokksins 6 26/49,

Sameiningarflokks alþýðu 1 47/49,

Sjálfstæðisflokksins 5 27/49,

og bar því þingflokkunum að leggja fram lista með þessari þingmannatölu:

Alþýðuflokkurinn 2,

Framsóknarflokkurinn 7,

Sameiningarflokkur alþýðu 2,

Sjálfstæðisflokkurinn 6.

Var því að öllu fullnægt ákvæðum téðrar gr. þingskapa, er miðast við, að eigi vanti á fulla tölu. En með því að þessar tölur samanlagðar eru hærri en tala þingmanna, er skipa eiga efri deild, bar að láta kosningu fara fram og skera úr um það, hverjir valdir yrðu. Og þar sem engin fyrirmæli er að finna í þingsköpum í gagnstæða átt, verður hér um rædd kosning að fara fram eftir almennum reglum þingskapa (sbr. einnig 48. gr.), enda komu engin mótmæli fram um það, eftir að listar höfðu verið fram lagðir og áður en kosning fór fram. Við kosninguna komu fram áður greindar niðurstöðutölur.

Því úrskurðast, að 6. maður á C-lista er rétt valinn til efri deildar.