20.08.1942
Neðri deild: 10. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 205 í B-deild Alþingistíðinda. (311)

28. mál, kosningar til Alþingis

Frsm. (Garðar Þorsteinsson):

Út af því, sem hv. þm. N.-Ísf. (SB) var að tala um, þá er það að sjálfsögðu athugunarmál, hvort ekki sé rétt að setja eitthvað strangari fyrirmæli til þess að reyna að útiloka, að það geti komið fyrir, að hægt sé að opna umslög, sem eru utan um utankjörstaðarkjörseðla, og loka þeim aftur, áður en atkvæði koma til talningar, og er vel hugsanlegt að fara þá leið, að hreppstjórar innsigli umslögin. Mér persónulega finnst í fljótu bragði, að það sé vel athugandi. Annars vil ég geta þess, að n. mun flytja brtt. um að fella burt ákvæðin Um, að kjósandi skuli skrifa með ritblýi á utankjörstaðarkjörseðil, enda mun reyndin vera sú, að oft hafi verið skrifað á þá kjörseðla með bleki. Í 68. gr. frv. er heldur ekkert sagt um það, að kjósandi eigi að rita með ritblýi á kjörseðil, þegar kosið er utan kjörfundar, Mér finnst sanni nær, ef eitthvað væri ákveðið fast um þetta, þá væri ákveðið, að skrifa skyldi á þessa kjörseðla með bleki, heldur en að skylda menn til að skrifa með ritblýi.

Út af því, sem hv. 1. þm. N.-M. (PZ) sagði, vil ég taka það fram, að það er hlutur, sem stjskrn. á ekki neina sök á, þó að það hafi dregizt eftir síðustu kosningar að telja atkv. eða að dregið var að Alþ. væri kallað saman. Annars skilst mér ekki, að þó að þingið hefði komið fyrr saman eftir kosningar, ef aukakosningar eiga að fara fram á annað borð, að þær hefðu getað farið fram fyrr heldur en um miðjan október, ýmissa ástæðna vegna, þó ekki þess vegna, að ekki væri hægt að láta kjörgögn vera undirbúin fyrr en svo, heldur sérstaklega vegna atvinnu bændanna, vinnu þeirra í sambandi við slátrun og smalamennsku. Ég álít, að haustannirnar séu þannig, að ekki sé tiltækilegt að hafa kosningarnar fyrr en þetta, ef haustkosningar eiga að fara fram á annað borð. Annars vil ég benda á það, að til skamms tíma hefur verið kosið til Alþ. á fyrsta vetrardag, og allir undu því þá mjög vel.

Hv. þm. N.-M. (PZ) var að segja, að það frv., sem hv. þm. hefðu í höndunum, væri ekki það sama frv., sem í raun og veru liggur hér fyrir til umr. Þetta er að vissu leyti rétt. En ég veit, að hv. þm. N.-M. getur fallizt á það, að það er ótiltækilegt að fara að flytja brtt. í hundraðatala út af prentvillum, þar sem stafir hafa fallið burt. Ég hef bent á, hverjar af greinunum eigi að vera óbreyttar. Og hins vegar hefur skrifstofustjóri Alþ. sagt, að ekki væri hægt að prenta þetta frv. þannig, að það gæti orðið fram borið á þann æskilegasta hátt, eins og ég hef tekið fram.

Þá var hv. 1. þm. N.-M. að tala um það, að meðmælendatalan þyrfti að vera hærri og að það ætti að setja ákvæði um það, að hægt væri að kjósa víðar en hjá hreppstjórum. (PZ: Ekki hjá hreppstjórum.) Ef einn hreppstjóri býr á afskekktum stað í sveit, ætti hann að geta lagt niður embætti sitt, a. m. k. að þessu leyti, og sýslumaður að geta skipað annan í staðinn. Annars hygg ég það ekki vera mjög miklum erfiðleikum bundið að komast til valdsmanna til að kjósa. En hitt er erfitt, að koma utankjörfundaratkv. til kjörstjórnar. Það eru kannske minni erfiðleikar á því að koma þeim öllum beint til yfirkjörstjórnar. Ég hygg, að það sé erfiðara að koma atkvæðunum til skila heldur en að greiða þau. Kjósendur hafa allt upp undir mánaðartíma til þess að greiða atkv. Það ætti þess vegna ekki að vera svo miklum erfiðleikum bundið.

Um meðmælendafjöldann er það að segja, að í kosningal. þeim, sem nú gilda, minnir mig, að meðmælendatalan hafi verið lækkuð frá því, sem áður var, a. m. k. var ákveðið, að meðmælendafjöldinn skyldi ekki vera meiri en í áður gildandi kosningal. Ég hygg, að það hafi verið af þeirri ástæðu, að það hafi ekki verið álitið rétt né viðkunnanlegt, að frambjóðendur væru að ganga á milli kjósenda til þess að fá meðmæli þeirra með þeim sem frambjóðendum fyrir kosningar, svo margra. Og bak við, hygg ég, að hafi legið að stemma stigu fyrir því, að frambjóðendur byndu atkv. kjósenda skriflega fyrir kjördag. Mér finnst ekki ástæða til að fjölga meðmælendunum frá því, sem nú eru ákvæðin um þá. Og n. þótti ekki ástæða til að fjölga meðmælendunum frá því, sem áður var.