24.08.1942
Neðri deild: 13. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 210 í B-deild Alþingistíðinda. (321)

28. mál, kosningar til Alþingis

Frsm. (Garðar Þorsteinsson) [frh.]:

Ég vil gera grein fyrir afstöðu minni persónulega til brtt. á þskj. 112. 1. brtt. er á þá leið, að skipa skuli annan kjörstjóra á hentugri stað í hreppnum, ef meiri hl. hreppsnefndar óskar þess. Ég er þessari till. algerlega andvígur. Ég fæ ekki séð, að nauðsyn beri til þess að skipa sérstakan kjörstjóra, jafnvel þó að svo standi á, að það kunni að vera til einhver dæmi um það, að hreppstjórar búi á afskekktum stöðum. Ég vil því mæla gegn þessari till. — Þá er 2. brtt., sem er til samræmis við 1. brtt., og er hún samhljóða 3. brtt. við 65. gr. Þá kemur næst brtt. við 85. gr., og er hún um það, hjá hverjum kjósandi geti fengið vottorð um það, að hann standi á kjörskrá. Ef við athugum nú, hvernig þetta gengur fyrir sig, þá hefur kjörskrá legið frammi um tíma, og kjósendur hafa getað haft tóm til að athuga, hvort þeir eru þar skráðir, og kæra, ef svo er ekki. Síðan er þetta úrskurðað og kjörskráin send oddvita eða formanni kjörstjórnar, en hann þarf ekki að vera í hreppsnefnd. Mér er því ekki 1jóst, hvernig hreppsnefnd getur alltaf gefið vottorð, þar er hún hefur ekki nærri alltaf hina endanlegu kjörskrá til umráða. Enda er mikil óþarfa skriffinnska við þetta, eins og gert er ráð fyrir því í brtt. Ég fæ beint ekki séð, að hreppsnefnd geti gefið slík vottorð, nema með því að fá fyrst vottorð frá undirkjörstjórn eða oddvita hennar. Því aðeins, að oddviti undirkjörstjórnar sé í hreppsnefnd, er hreppsnefndin fær um að gefa þessi vottorð. Ég mæli því gegn þessari brtt.

Þá er 5. brtt. þess efnis, að atkvgr. megi aldrei standa lengur en til kl. 12 að nóttu á kjördag. hað er harla einkennilegt, að á þessu sama þskj. skuli svo vera prentuð bráðabirgðaákvæði þess efnis, að við næstu kosningar í haust skuli vera tveir kjördagar í sveitum, og er því borið við, að erfiðar ástæður og vont veður geti að öðrum kosti hamlað mjög kosningasókn í sveitum að haustinu til. Nú vita þeir hv. flm. þessarar brtt., að það er undantekning, ef illveður hamlar almennt kjörsókn, þótt það sé hugsanlegur möguleiki. En þeir vita einnig, að kosningu í kaupstöðum er aldrei lokið kl. 12 að kvöldi. Þetta á við um öll hin stærri kauptún og þó einkum Rvík. Það væri hugsanlegur möguleiki, að maður, sem ekki er á kjörskrá, en öðlast kosningarrétt næsta dag á eftir kjördegi, gæti komið eftir kl. 12 og heimtað að kjósa. En þessir hv. þm. vita, að þessi mótbára er fyrirsláttur einn. Þetta er ekki hægt. Reynslan hefur hins vegar sýnt, eins og ég sagði áðan, að kosningu í kaupstöðum er aldrei lokið kl. 12. T. d. má nefna, að mér er sagt, að bæjarstjórnarkosning á Siglufirði hafi eitt sinn staðið til kl. 3 að nóttu. Það er ekkert ósanngjarnara, að kosning fái að halda lengur áfram í kaupstöðum en að kjörfundur í t. d. 100 manna sveit skuli verða að taka minnst 8 tíma. Mér finnst ósamræmi í þessu, og er ég á móti brtt. þessari.

6. brtt. á þskj. 112, við 104. gr., kemur næst. Hugsunin bak við hana er sú, að oddviti kjörstjórnar geti opnað atkvæðakassann og falsað atkvæðaseðla. Ég er í sjálfu sér ekki á móti því að tryggja, að þetta geti ekki átt sér stað. En til eru ákvæði í l. um það, að umboðsmenn allra flokka megi setja innsigli sitt á pokann, sem kjörgögn eru geymd í, ásamt innsigli oddvita kjörstjórnar. Ákvæði þessa eðlis eru því fyrir hendi, og mér finnst, ef þau teljast ekki fullnægjandi, þá bæti það ákvæði ekki úr skák, sem hér er lagt til. Ekkert er tekið fram um, hver eigi að geyma kjörgögnin og innsigli kjörstjórnarinnar, aðeins tekið fram, að það megi ekki hvort tveggja vera í höndum oddvita kjörstjórnar. Eftir þessu gæti kona hans annazt vörzluna eins og hver annar. Mér finnst, að ákveða þyrfti í þessu tilfelli, hver ætti að annast vörzluna. (BÁ: Maður og kona eru eitt). Það getur verið, en þau mundu ekki verða talin sami vörzluhafi.

Þá er brtt. við 107. gr. Það er meinlaust ákvæði, og mæli ég hvorki með því né móti. Yfirleitt munu kjörstjórnir hraða talningu svo sem auðið er, og er þetta því óþarft ákvæði í sjálfa sér.

Þá eru loks ákvæði til bráðabirgða um kosningar í haust. Ég tel hvorki nauðsynlegt né rétt að ákveða tvo kjördaga utan kaupstaða. Það er annað að fresta kosningu, ef veður hamlar. Til þess hélt ég, að væri heimild í l. En að gera það að almennri reglu að hafa tvo kjördaga utan kaupstaða, það get ég ekki fallizt á. Mér virðist nægilegt að smala á kjörstaðinn í einn dag. Enda er það ekki ótti við, að veður hamli, sem liggur bak við þessa till., heldur áhuginn fyrir því, að sem flestir kjósi. En þá ætti það sama að gilda um kaupstaðina. Ég sé enga nauðsyn til að ganga inn á þetta, nema það yrði þá a. m. k. látið ganga jafnt yfir alla kjósendur. Hv. þm. vita, að veður geta hamlað kosningu í einstökum tilfellum. En mér skilst, að nægilega vel sé við því séð í núgildandi 1., er leyfa þá að fresta kosningunni.

Út af brtt. á þskj. 114 vil ég segja, að ég tek ekki neina endanlega afstöðu til þeirrar hugsunar, er í henni felst. Þó gæti ég trúað, að nokkuð erfitt yrði um framkvæmd þess er þar um ræðir. Lakkið getur auðveldlega brotnað í meðferðinni, og það kann að vera erfitt fyrir kjörstjórnina að ákveða, hvort lakkið hafi viljandi verið brotið eða það brotnað af sjálfu sér. Ákvæði þyrftu því að vera um það, að kjörstjórnin legði slík umslög til hliðar.

Þá kemur brtt. á þskj. 111, er vill fella burt ákvæði um, að atkvæðaseðill sé ógildur, ef kjósandi hefur kosið fyrir kjördag, en er svo staddur á kjörstað í sinni kjördeild, er kosning fer fram. Ég veit, að komið getur fyrir, að maður, sem ætlað hefur burt úr sinni kjördeild og kýs þess vegna fyrir kjördag, verður af einhverjum ástæðum að hætta við það og þarf svo að vera á kjörstað á kjördegi. En ég held, þrátt fyrir svona tilfelli, að þetta ákvæði eigi að haldast í l., því að væri það ekki lengur, gætu menn farið að leika það almennt að kjósa fyrir kjördag, og flokkarnir gætu smalað endalaust. Ég vil ekki mæla með, að samþ. verði að fara inn á þessa leið.