27.08.1942
Neðri deild: 15. fundur, 60. löggjafarþing.
Sjá dálk 224 í B-deild Alþingistíðinda. (328)

28. mál, kosningar til Alþingis

Frsm. (Garðar Þorsteinsson) :

Eftir að ég hafði lokið framsöguræðu minni, sumpart f. h. n. við 3. umr. og sumpart aths. við brtt., stóð á fætur hv. þm. V.-Sk. og hellti úr skálum reiði sinnar yfir mig fyrir, að ég hefði leyft mér að tala um till., áður en flm. hefðu fylgt þeim úr hlaði. Sagði hann, að ég þyrfti að læra þingsiði. Þessi þm. er nú kunnur að því að vera orðhvass og ádeilinn, svo að ég tek skömmum hans með hugarró, en ég vil segja það, að hæstv. forseti var nýbúinn að lýsa yfir því, að þessar till. væru til umr., enda var hann (hv. þm. V.-Sk.) þá ekki sjálfur sterkari á svellinu en svo, að hann fór að ræða efni till., sem ekki hafði verið fylgt úr hlaði. Hann sagðist vera fylgjandi till. á þskj. 110, áður en mælt hafði verið fyrir henni. En ég skil ekki, að á því eigi að gera greinarmun, hvort sá, sem brýtur þingsiði, talar með málinu eða móti. Ég mælti og ekki gegn öllum till. á þskj. 112, enda var þetta engin goðgá hjá mér heldur hefur það alltaf viðgengizt. Það er ekki óvenjulegt, að enginn tali fyrir brtt. Ég læt hv. þm. vita, að ég ætla ekki að spyrja hann, hvenær ég tek til máls um till., og allra sízt ætla ég að gera þingsiði af honum.

Þá ætla ég að segja nokkur orð um brtt., sem hann hefur talað fyrir. Ég get hvorki fallizt á rök hans né hv. þm. N.-M. um það, að nauðsynlegt sé að skipa kjörstjóra. Og ég vil spyrja, hvort það sé ætlunin, að það séu tveir menn í hrepp, sem láta kjósa hjá sér, eða á að skerða valdsvið hreppstjóra að þessu leyti? Flm. þessarar till. hefur sagt mér, að hann ætlist til, að kjörstjóri geti líka látið kjósa hjá sér, enda er það eðlilegra en ef umboð hreppstjóra væri látið falla niður.

Hv. 1. þm. N.-M. nefndi dæmi um það, að langt væri að fara t. d. í Svarfaðardal, ef hreppstjóri byggi á Melum. Það kann að vera rétt, en hv. þm. gleymir því bara, að það er engin skylda fyrir hreppsbúa að kjósa hjá sinni eigin hreppsnefnd. Menn eiga leið hjá öðrum hreppstjórum, sem þeir geta kosið hjá. Maður, sem fer frá Dalvík til Akureyrar, ekur um hlaðið hjá þremur hreppstjórum, auk þess sem hann getur kosið hjá bæjarfógetanum á Akureyri, þegar þangað er komið. Ég legg ekki mikið upp úr þessu atriði, en ég hygg, að í hreppstjórastöðu séu valdir einna hæfustu mennirnir, enda mætti líka deila um, hvort skyldu vera einn eða fleiri kjörstjórar! Ég legg því á móti till., af því að ég fellst ekki á principið, þó að þetta gæti ef til vill í sumum tilfellum verið þægilegra.

Um 4. brtt. á þskj. 112 greinir mig á við suma þm. Ég skil málið svo: Kjörskrá liggur frammi, og það er auglýst og allir kjósendur geta athugað, hvort þeir eru á kjörskrá eða hvort aðrir eru á kjörskrá, sem ekki eiga að vera þar. Innan fárra daga á hreppsnefnd að hafa úrskurðað um þetta. Þá fyrst er búið að ganga löglega frá kjörskrá. Það á ekki að vera hægt að fá vottorð um, að maður standi á kjörskrá, fyrr en þessi frestur er liðinn, né heldur kæra menn út af kjörskrá. Setjum nú svo, að maður, sem veit, að það á að kæra hann út, fer og biður um vottorð um, að hann standi á kjörskrá. Hreppsnefndin úrskurðar svo, að hann skuli ekki vera á kjörskrá, en maðurinn hefur vottorðið og kýs. Þá er ekki hægt að banna honum að kjósa. Það á því ekki að gefa slík vottorð, fyrr en fresturinn er liðinn. Þegar búið er að ganga frá þessu, á kjörskráin að fara til undirkjörstjórnar. Við skulum taka til dæmis stóran hrepp með 4 kjördeildum. Hreppsnefndin á að hafa gengið svo frá, að hver kjördeild fyrir sig fái þá skrá, sem henni tilheyrir. Undirkjörstjórn getur svo gefið vottorð um, að maður standi á kjörskrá.

Ég fæ ekki séð, hvaða útlát það eru fyrir kjósanda að snúa sér til undirkjörstjórnar. En vitanlega mundi ég vilja taka vottorð hreppstjóra eins gilt, ef hann hefði gögnin hjá sér.

Ég verð að segja, að mér finnst lítið samræmi í því hjá hv. þm. V.-Sk. og hv. 1. þm. N.-M. að gera samtímis kröfu um, að kosningar skuli standa tvo daga í sveitum, en í kaupstöðum skuli skilyrðislaust loka kl. 12 á miðnætti, þegar í sveitum er heimilt að ákveða annan kjördag, ef veður hamlar á aðalkosningadaginn. Í Svarfaðardal hafa við kosningar eftir kosningar kosið um og yfir 90% kjósenda á einum degi. Hv. 1. þm. N.-M. sagði, að í kaupstöðum væri hægt að kjósa alla nóttina og heilan dag, en hann ætlar að greiða atkv. með till., sem felur það í sér, að lokað skuli kl. 12 á miðnætti. Ég vil líka benda á, að í stórum hreppum er heimilt að hafa 4 kjördeildir, og það ætti eitthvað að létta undir. Það er líka óviðkunnanlegt, ef búið er að lesa atkvæðatölur úr kaupstöðum, áður en kosningu er lokið í sveitum. Það má segja, að þetta sé ekki mikið atriði, en ég felli mig ekki við það. Og ég vil algerlega mótmæla, að það sé af illvilja til sveitanna, eins og hv. 1. þm. N.-M. sagði.

Um brtt. á þskj. 112 má vera, að bak við hana sé sú hugsun að tryggja öryggi kosninganna, en maður verður þó að ganga út frá, að oddvitar kjörstjórna rjúfi ekki innsigli. (SvbH: Þess eru dæmi). Veit þessi hv. þm. nokkurt dæmi? Ég skora á hann að segja til þess. Nei, það er aðeins eftir hans innræti að rægja og gera menn tortryggilega. En ég vil segja það, þótt þessi hv. þm. sé pólitískur andstæðingur minn, þá mundi mér ekki detta í hug að tortryggja hann í þessa átt, þótt hann væri kjörstjóri og hefði kjörgögn undir hendi. (PZ: Hann er nú líka prestur). Hann gleymir því nú víst nema 7. hvern dag. Hvað á annars, samkv. þessar í till. að gera við innsiglið? Hver á að geyma það? Á að henda því e. t. v.? Vill þessi hv. þm. segja, að þessu ákvæði sé fullnægt, ef kjörstjóri afhendir það aðeins einhverjum ótilteknum manni? Ég hygg, að undirkjörstjórn eigi jafnan að skila af sér öllum gögnum til yfirkjörstjórnar. Það er bara þetta sorglega, að trúa ekki embættismönnum. En álit mitt er, að eiðsvarna menn beri ekki að tortryggja að óreyndu. Það er sami andinn bak við þetta ákvæði og það, að oddvita yfirkjörstjórnar sé ekki nóg að segja af sér áður en atkvæðakassar eru opnaðir, heldur verði hann að gera það um leið og kosningu er lokið, ef hann er sjálfur í kjöri. En sýslumenn geta ekki misnotað þetta, þótt þeir séu í kjöri. En af tortryggni flytur hv. þm. þessa till., þótt engin ástæða sé til þess og ekkert tilfelli finnist í stjórnmálasögu undanfarinna ára, sem réttlæti það. En þess háttar þjónar lund þessa hv. þm. Ég skal svo ekki fara um þetta fleiri orðum.

Um brtt. hv. þm. A.-Húnv. er það að segja, að það er hægt að hugsa sér tilfelli, sem réttlátt mætti teljast, að þetta lagaákvæði væri ekki til. En það er bara ekki hægt að víkja frá þessari reglu eða gera þar á neinar undanþágur. Ef farið væri samkv. þessari till., þá mundu menn kjósa í stórum stíl fyrir kjördag, og mundu flokkarnir, hver um sig, smala atkvæðum. Þessi regla má ekki komast á, og greiði ég ekki atkv. með þessari till.